Yfirvöld hafa sagt að í versta falli þurfi að loka fyrir rafmagnið í þrjár klukkustundir í einu ef málin þróast á versta veg.
Ef svo fer verður fólki gert viðvart daginn áður um hvenær lokað verður fyrir rafmagnið hjá þeim. Með því á að minnka rafmagnsnotkunina um fimm prósent.
En samkvæmt því sem breskir fjölmiðlar segja þá er Lis Truss á móti einfaldri lausn sem gæti leyst þennan vanda. Hún er sögð á móti þessari lausn af hugmyndafræðilegum ástæðum.
Atvinnumálaráðherra hennar, Jacob Rees-Mogg, hefur nefnilega gert áætlun um auglýsingaherferð sem á að fá Breta til að spara orku. Herferðin kostar 15 milljónir punda.
En eins og staðan er núna þá verður ekki farið af stað með þessa herferð því Truss hefur bannað það vegna þess að hún hefur áhyggjur af að herferð af þessu tagi muni vera of mikið inngrip í frjálst val fólks. „Við erum ekki barnapíuríkisstjórn,“ sagði Graham Stuart, umhverfismálaráðherra.
Flokkssystkini hennar hafa hvatt hana til að skipta um skoðun eins og hún gerði varðandi afnám hátekjuskattsins. Þingmenn og forystumenn í iðnaði segja að ekkert sé að því að gefa fólki ráð um hvernig það getur sparað peninga.