„Við lifum á mjög hættulegum tímum,“ sagði bandarískur heimildarmaður innan NATO í samtali við TV2.
Annar heimildarmaður sagði að það væri óábyrgt að vera ekki undir næsta leik Pútíns búin.
TV2 segir að bæði meðal æðstu stjórnenda hjá NATO, bæði herforingjum og stjórnmálamönnum, sé ákveðinn ótti við hvað Pútín muni gera. Hann sé nú króaður af úti í horni en ekki sé ljóst hvort það geri hann hættulegri en ella. Hjá NATO vinna því greinendur dag og nótt við að reyna að spá fyrir um þróun stríðsins í Úkraínu.
Líklegt er talið að herkvaðningin hafi veikt stöðu Pútíns meðal fjölda Rússa og að áhugi og vilji fólks til að standa í stríði fari þverrandi. Tugir þúsunda manna á herskyldualdri hafa flúið land og víða hefur komið til mótmæla. Hjá NATO er rætt hvort þessi aukni þrýstingur á Pútín geri hann hættulegri eða hvort það auki líkurnar á valdaskiptum í Kreml. Stóra spurningin sé hvar sársaukamörk mikilvægustu stuðningsmanna Pútíns séu.