fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Eyjan

Lýsa yfir fullum stuðningi við Ragnar Þór eftir „ósmekklega“ gagnrýni

Eyjan
Laugardaginn 8. október 2022 08:59

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn VR lýsir yfir fullum stuðningi við framboð formanns félagsins, Ragnars Þórs Ingólfssonar, til forseta ASÍ, en stjórnin sá sig knúna til að birta stuðningsyfirlýsingu í ljósi greinaskrifa stjórnarfólks í 12 aðildarfélögum ASÍ á dögunum þar sem framboð Ragnars var harkalega gagnrýnt.

Sjá einnigHjóla harkalega í Ragnar Þór – „Grípur stöðugt til hótana og gengur á dyr ef hann fær ekki sínu fram“

Stjórn VR segir að í greinaskrifum hafi verið veist að formanni VR „með afar ósmekklegum hætti“ og vildi stjórn VR því koma því á framfæri að þeim manni sem var lýst í grein 12 leiðtoga verkalýðsfélaga innan ASÍ, væri ekki sá maður sem stjórnin þekkir.

„Þetta er ekki sá Ragnar Þór sem við þekkjum mörg býsna vel eftir margra ára stjórnarsetu saman í stjórn VR. Ragnar Þór hefur verið formaður VR í næstum þrjú kjörtímabil frá því að hann var kosinn formaður félagsins árið 2017. Hann hefur endurnýjað sitt umboð frá félagsmönnum á tveggja ára fresti og ávallt fengið mjög góðan stuðning í embætti formanns.“ 

Stjórn VR segir að fyrirkomulag stjórnar sé þannig að helmingur stjórnar er kosinn árlega til tveggja ára og því skipti miklu máli að vanda til verka innan stjórnarinnar svo góður liðsandi myndist og styrkleikar fái að njóta sín.

„Við stjórnarfólk í VR erum ólíkur hópur og alls ekki alltaf sammála og vissulega langir stjórnarfundir oft á tíðum en Ragnari Þór hefur tekist að byggja upp góðan liðsanda í hópi stjórnar þar sem frjáls og opin skoðanaskipti eiga sér stað og allar raddir fá að heyrast. Ragnar Þór hefur verið öflugur formaður VR og stjórn VR lýsir yfir fullum stuðningi við framboð hans til forseta ASÍ.“ 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolbeinn spyr hvort Íslendingar þurfi róttæka vinstri hreyfingu – „Ég er hreint ekki sannfærður“

Kolbeinn spyr hvort Íslendingar þurfi róttæka vinstri hreyfingu – „Ég er hreint ekki sannfærður“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halldór Auðar snýr baki við Pírötum – „Niðurstaða kosninganna fyrst og fremst endurspeglun á löskuðu innra starfi“

Halldór Auðar snýr baki við Pírötum – „Niðurstaða kosninganna fyrst og fremst endurspeglun á löskuðu innra starfi“