Hér í denn, á tíma vínilplatna, var oft lög mikil og djúp hugsun í umslögin enda gátu þau á stundum haft úrslitaáhrif um sölu á viðkomandi skífu.
Stundum tókst afar vel til og lifa sum plötuumslög í sögunni sem listaverk. En stundum tókst ekki jafn vel til. Lítum á nokkur dæmi um umslög sem illmögulegt er að átta sig á af hverju þóttu boðleg til útgáfu á sínum tíma.
Það eru svo margt rangt við þetta plötumslag. Jú, Merle Evans lék á kornett og sérhæfði sig í tónlist til notkunar í sirkusum. Var hann orðinn það það samdauna sirkuslífiinu að finnast þessi ákveðni trúður fullkomlega eðlilegur? Af hverju er trúðurinn með lokuð augu? Er hann að íhuga að éta blessað barnið?
Þetta er klárlega plötuumslag sem hefur valdið einhverjum ógæfusömum einstakling, jafnvel einstaklingum, martröðum til margra ára.
Þessa snilld á þungarokksbandið The Handsome Beasts sem stofnað var í Bretlandi árið 1972 og öðlaðist þó nokkra fræg á sínum heimaslóðum. Sveitin skartar fleiri áhugaverðum plötuumslögum eins og hér má sjá.
Reyndar þykir þetta umslag jafnvel verra en það fyrra og er á topp þremur næstum allra lista yfir verstu plötumslög sögunnar.
Þessi hugljúfa mynd af sveitinni Maddy Genets er reyndar á sjötommu, fyrir þá sem það muna, en ekki breiðskífu. Um er að ræða flutning á gömlum, frönskum þjóðlögum og það má segja umslaginu til hróss að það nær að fanga tónlistina á skífunni fullkomlega.
Voru meðlimir bandsins fjölskylda? Hugsanlega en ef svo er þá hefur örugglega alltaf verið gaman á því heimili enda skín af þeim lífsgleðin.
Gerhard Polt, þýskur rithöfundur, kvikmyndagerðarmaður, leikari og söngvari gaf út þessa breiðskífu árið 1981. Hvað liggur að baki er illskiljanlegt en svo mikið er víst að einhverjum, hugsanlega Gerhard sjálfum, fannst geggjuð hugmynd að setja höfuðu listamannskins ofan á svínakjöt með ananas.
Fólk er jú allskonar.
Quim Barreiros var vinsæll portúgalskur tónlistarmaður sem elskaði harmóniku sína. Og þá er vægt til orða tekið. Barrieros gaf út fjölda platna með bráðskemmtilegri harmónikutónlist og á hverju einu og einasta plötuumslagi tókst honum að skapa nýja snilld til heiðurs sínu uppáhalds hljóðfæri.
Margir telja þetta umslag vera kórónuna á ferli tónlistarmannsins en gripurinn kom út árið 1971. Af hverju kappinn taldi sig knúinn til að vera nakinn verður þó alltaf stóra spurningin.