Mist Edvardsdóttir er gestur í nýjasta þætti Íþróttavikunnar með Benna Bó á Hringbraut. Hún mætti í settið ásamt Herði Snævari Jónssyni, íþróttastjóra Torgs.
Elín Metta Jenssen lagði skóna á hilluna aðeins 27 ára gömul í vikunni sem er að líða. Það var að sjálfsögðu rætt í þættinum.
„Ég held að markaðsstjóri Bestu deildarinnar sé vonsvikinn. Hún er svolítið búin að vera andlit deildarinnar kvenna megin. Hún er að hætta á besta aldri og það er mikil eftirsjá af henni, bæði með landsliðinu og Val,“ segir Mist.
Elín mun nú einbeita sér að læknisnámi. „Maður þarf að gera það sem veitir manni ánægju,“ segir Mist einnig.
Hörður hefur ekkert nema gott að segja um Elínu.
„Á sínum degi er þetta einhver besta nía sem við höfum séð í efstu deild.“