Að sögn breskra fjölmiðla var myndbandið tekið í Kherson í suðurhluta Úkraínu.
Þegar áhöfn skriðdrekans er komin út úr honum sjást úkraínsku hermennirnir leita á mönnunum og taka vopn þeirra af þeim. Þeir eru síðan teknir til fanga. Svo virðist sem samið hafi verið um uppgjöf rússnesku hermannanna fyrir fram.
Fyrr í vikunni var skýrt frá því að rúmlega 2.000 rússneskir hermenn hefðu hringt hjálparlínu til að fá leiðbeiningar um hvernig þeir gætu gefist upp fyrir úkraínskum hermönnum.