„Við verðum að hætta að ljúga. Fólk er ekki heimskt,“ sagði Andrey Kartapolov, þingmaður og fyrrum hershöfðingi, í samtali við þáttastjórnandann Valdimir Solovjov í gær þegar þeir ræddu um daglegar stöðufærslur rússnesku ríkisstjórnarinnar um gang stríðsins. Orð hans vega þungt því hann er formaður varnarmálanefndar þingsins.
„Fyrst verðum við að hætta að ljúga. Við höfum rætt þetta mikið en af einhverjum ástæðum nær þetta ekki eyrum háttsettra manna,“ sagði hann að því er Francis Scarr, fréttamaður BBC, segir.
Hann nefndi síðan nokkur dæmi úr síðari heimsstyrjöldinni þar sem sovéskir leiðtogar sögðu ósatt um stöðuna á vígvöllunum. Hann sagði að það sama eigi sér stað núna og að varnarmálaráðuneytið reyni að fegra hlutina með áróðri um „flugskeyti sem eru skotin niður og fallna nasista“. „En fólk veit og það er hér sem vandamálin byrja. Fólk er ekki heimskt. Það er langt frá því að vera heimskt,“ sagði hann meðal annars.
Russian MP Andrei Kartapolov, a former army general, says the Defence Ministry needs to stop lying in its daily updates on the war
"People are far from stupid. They can see that they're not being told the truth" pic.twitter.com/xxz5hsp1gU
— Francis Scarr (@francis_scarr) October 5, 2022
The Guardian segir að í gær hafi Pútín rætt við útvalda kennara í gegnum fjarfundabúnað og var fundurinn sendur út í sjónvarpi. Þar sagði hann hluti sem voru að sögn The Guardian óbein viðurkenning á slæmu gengi rússneska hersins í Úkraínu. Hann sagði að nú sé unnið út frá því að staðan í innlimuðu héruðunum munu komast í jafnvægi. Hann lét einnig orð falla sem ganga gegn fyrri ummælum hans um að Úkraína sé land sem eigi sér engan tilverurétt: „Þrátt fyrir núverandi hörmungar þá höfum við alltaf haft og höldum áfram að bera mikla virðingu fyrir Úkraínubúum og menningu þeirra og tungumáli, bókmenntum og fleiru.“