Mikill styr hefur staðið um málefni Ferðafélags Íslands undanfarna viku eftir að forseti félagsins, Anna Dóra Sæþórsdóttir, sagði af sér embætti og bar stjórn félagsins samhliða þungum sökum í yfirlýsingu.
Þar gagnrýndi hún það sem best verður lýst sem gerendameðvirkni stjórnarmanna, en hún sagði stjórnarmenn hafa beitt sér fyrir því að maður sem ítrekað hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni fengi aftur að starfa fyrir félagið, sem og brugðist hafi verið við því er gjaldkeri félagsins var sakaður um áreitni með því að hafa uppi óbeinar hótanir gagnvart fararstjóra ferðarinnar og vinkonu þolanda tilkynnt að það „myndi hafa afleiðingar ef þetta mál yrði rétt frekar.“
Anna Dóra sagði einnig að henni hafi verið kvartað undan því er hún fór að spyrja spurninga um rekstur félagsins og henni sagt að einbeita sér heldur að ferðamálum, náttúruvernd og umhverfismálum.
FÍ sendi félagsmönnum yfirlýsingu í kjölfarið þar sem ásökunum Önnu Dóru var vísað og bug og sagt að það væri hún se væri vandamálið, en hún hefði reynt að fara framhjá lýðræðislegum ferlum og lagt framkvæmdastjórann, Pál Guðmundsson, í einelti.
Sjá einnig: Segja Önnu Dóru hafa verið vandamálið – Formlega sökuð um einelti gegn framkvæmdastjóranum
Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar og félagi í Ferðafélagi Íslands (FÍ), hefur sent FÍ harðort svar við þessu bréfi og telur ljóst að FÍ reyni nú að varpa allri ábyrgð á Önnu Dóru frekar en að taka gagnrýnina til sín og taka til í sínum málum.
Krefst Kristín í bréfi sínu svara við nokkrum beinskeyttum spurningum um starfshætti félagsins og viðbrögð þess við ásökunum um kynferðislega áreitni í garð félagsmanna. Kristín gaf DV góðfúslega leyft til að fjalla um færsluna.
Hún skrifar:
„Í morgun sendi ég eftirfarandi bréf á stjórn Ferðafélags Íslands sem svar við ömurlegu bréfi sem stjórnin sendi frá sér um brotthvarf Önnu Dóru Sæþórsdóttur, úr stóli forseta félagsins. Ég hef ekki sagt mig úr félaginu ennþá þar sem ég ákvað að reyna að beita mér sem félagsmaður, krefjast svara og mæta á félagsfund sem boðaður hefur verið 27. október en skil mjög vel fólk sem hefur sagt sig úr félaginu“
Síðan deilir Kristín bréfinu sem hún sendi FÍ en þar má finna þungar ásakanir um viðbragðsleysi félagsins við alvarlegum kvörtunum í garð tveggja nafngreindra einstaklinga sem annars vegar starfa á vegum félagsins og hins vegar starfa í stjórn þess.
„Sæl Sigrún og stjórn FÍ.
Ég sem félagi í FÍ til langs tíma, og sl. ár þátttakandi í Kvennakrafti, sé mig knúna til að lýsa gríðarlegum vonbrigðum yfir viðbrögðum stjórnar við yfirlýsingu Önnu Dóru Sæþórsdóttur fv. forseta félagsins. Anna Dóra hefur skapað sér gott orð í öllum sínum störfum og yfirlýsing hennar og afsögn hefði átt að kalla á miklu faglegri og virðingarfyllri viðbrögð.“
Þannig hefst bréfið sem Kristín hefur sent FÍ og birt opinberlega á Facebook síðu sinni. Kristín segir ljóst af yfirlýsingum stjórnar að lítill skilningur sé meðal stjórnarmanna um ofbeldismenn og afleiðingu þess að ekki sé tekið á málefnum þeirra á markvissan hátt með hag þolenda í huga.
„Í stað þessa að sýna þolendum fararstjóra félagsins, sem ég veit að eru þónokkrir, þá virðingu að sinna þessum málum af kostgæfni virðist sem samhygðin liggi hjá þeim sem næst standa stjórnarmönnunum, þ.e. gerendum sem sumir virðast hafa fengið ný tækifæri til brjóta af sér“
Sjá einnig: Lýsir afskiptum Ferðafélags Íslands af ásökunum hennar í garð Helga – „Ég ætla ekki að þegja lengur“
Kristín minnir á að markmið félagasamtaka sé að vinna að almannahagsmunum. Af viðbrögðum stjórnar mætti þó heldur ætla að tilgangur stjórnar FÍ sé að gæta eigin hagsmuna. Eins bendir hún á að flestir stjórnarmenn starfi einnig fyrir félagið og skapi það hættu á hagsmunaárekstri.
„Með smá skoðun á vef félagsins sést að flestir í stjórninni starfa einnig fyrir félagið, þó það sé ekki aðalstarf stjórnarmannanna. Slík staða skapar hættu á hagsmunaárekstrum og er mjög mikilvægt að gagnsæi ríki um alla hagsmuni og hægt sé að ræða þá á opinn og gagnsæjan hátt. Þess vegna er það mjög alvarlegt ef æðsti stjórnandi félagsins hefur fundið fyrir hindrunum í aðgengi að fjármálaupplýsingum félagsins.“
Kristín segist hafa vitneskju um það að fjöldi kvartana hafi borist FÍ vegna fararstjóra hjá félaginu. Engu að síður sé umræddur maður enn að störfum.
„Ég talaði við einn þolanda hans um helgina og sú kona sendi inn formlega kvörtun vegna mjög alvarlegs atviks í ferð með honum fyrir nokkrum árum en fékk aldrei svar frá félaginu. Ég er hér að tala um Hjalta Björnsson. Ég get upplýst að mér hafa einnig borist fjöldi svipaðra sagna af Hjalta af öðrum starfsvettvangi og átti ég langt samtal við annan þolanda hans um helgina. Það mál kom til kasta Embættis landlæknis.“
Óskar Kristín því svara við nokkrum áleitnum spurningum. Svo sem um viðbrögð framkvæmdastjóra og eins stjórnarmanns við því að sá síðarnefndi var sakaður um ósæmilega hegðun. Hún nafngreinir báða aðilanna. Annar þeirra er Hjalti Björnsson sem er fararstjóri sem starfar innan félagsins og hinn er Pétur Magnússon, gjaldkeri stjórnar.