Knattspyrnudeild Víkings Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar neikvæðrar umræðu sem kom upp eftir úrslitaleik liðsins gegn FH um nýliðna helgi þar sem einstaka stuðningsmenn félagsins gerðust sekir um ósæmilega hegðun.
„Í kjölfar glæsilegs sigurs Víkings í Mjólkurbikarkeppni KSÍ, þriðja árið í röð, hefur komið upp neikvæð umræða um framkvæmd leiksins og hegðun stuðningsmanna,“ segir í yfirlýsingu Víkinga.
„Knattspyrnufélagið Víkingur harmar mjög framkomu einstakra stuðningsmanna sem settu ljótan svip á leikinn. Hátt í 3000 stuðningsmenn Víkings voru á leiknum sem nær allir hegðuðu sér óaðfinnanlega en nokkur skemmd epli settu ljótan blett á frábæra stuðningsmannasveit.“
Félagið hefur óskað eftir myndum og upptökum úr öryggiskerfi vallarins í þeim tilgangi að ná tali af þessum mönnum. Öll gæsla á leiknum var í höndum Knattspyrnusambandins og komu félögin ekki að því.
Mbl.is greindi frá því í gær að sjálfboðaliði í fótboltagæslu á Laugardalsvelli segist ekki munu taka þátt í gæslu á fleiri bikarleikjum eftir bikarleik Víkings gegn FH, sem fram fór í Laugardal í fyrradag. Vísar hann til ölvunar og slæmrar hegðunar stuðningsmanna.