Það eru flestir knattspyrnuaðdáendur sem hafa heyrt nafnið Wanda Nara en hún er umboðsmaður og hefur einnig starfað sem fyrirsæta í gegnum tíðina.
Wanda hefurl engi verið í sambandi við sóknarmanninn Mauro Icardi sem leikur með Galatasaray.
Í síðustu viku tilkynnti parið að þau væru að skilja stuttu eftir að Icardi færði sig frá París til Tyrklands en hann lék með Paris Saint-Germain.
Wanda er gríðarlega vinsæl á Instagram og er með 15,3 milljónir fylgjenda og er dugleg að birta myndir og eru margar af þeim djarfar.
Wanda er ásökuð um að sýna skilnaðinum litla virðingu eftir nýjustu myndirnar sem hún birti á síðunni.
,,Er þetta það fyrsta sem þú hugsaðir um eftir skilnaðinn? Er lausnin að birta klámfengnar myndir? Þú átt börn.„ skrifar reið kona við eina af myndunum.
,,Hvernig geturðu látið svona? Hvernig myndi þér líða ef hann myndi gera það sama?“ bætir annar við.
Fólk hefur tekið undir þessi ummæli en parið var saman í um tíu ár og eignuðust fjölskyldu á þeim tíma.