Í lok blaðamannafundar lögreglu um rannsókn á hinu svokallaða hryðjuverkamáli fengu fjölmiðlar að mynda hluta þeirra skotvopna sem lögreglan haldlagði við rannsókn málsins. Um er að ræða alls 4 skotvopn sem lögreglan sýndi fjölmiðlum, auk skotfæra.
Gæsluvarðhald yfir öðrum manninum sem var handtekinn við rannsókn málsins átti að renna út í dag en á blaðamannafundinum greindi lögregla frá því að það gæsluvarðhald yfir þeim manni hafi verið framlengt um eina viku.
Sveinn Ingiberg Magnússon, yfirlögregluþjónn hjá embætti héraðssaksóknara, sagði frá því á fundinum að alls hafi verið gerðar 17 húsleitir vegna rannsóknar málsins. 60 munir með rafrænum gögnum, það er tölvur og símar, voru haldlagðir í húsleitunum, þar að auki voru tugir skotvopna haldlögð, sum sett saman með þrívíddarprentuðum íhlutum og voru sum þeirra hlaðin.
Sveinn benti á að enginn vafi léki á því að hægt væri að valda gífurlegum skaða með vopnum sem framleidd eru með þrívíddarprentara. Sumum vopnanna hafði verið breytt þannig að þau yrðu hálfsjálfvirk, en Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir slík vopn mun hættulegri en svokölluð „eins skots vopn“.
Lögregla vill ekki svara því hve langt skipulagning meintra hryðjuverka var komin, til dæmis hvort mennirnir hafi legið yfir teikningum að byggingum þar sem til stóð að fremja hryðjuverk. Sveinn sagði aðspurður að ekki hefði áður vaknað grunur umskipulagningu hryðjuverka við rannsóknir sakamála.
„Kannski er að opnast einhver nýr veruleiki,“ sagði Sveinn.