Vísindamenn hafa nú áætlað fjölda maura hér á jörðinni með því að styðjast við 489 rannsóknir um maura í öllum þeim heimsálfum þar sem maurar lifa.
Mat vísindamannanna er að það séu um 2,5 milljónir maura á hvern jarðarbúa. Samanlagt eru þetta því ansi margir maurar og nú geta reiknimeistarar tekið fram blað og blýant eða reiknivél og reiknað út hversu margir maurar þetta eru í heildina.
Það kemur kannski ekki mjög á óvart að það séu ansi margir maurar því þetta eru dugleg og félagslynd dýr. Þeir hafa verið til síðan á tíma risaeðlanna en elsti þekkti steingervingurinn af maur er 100 milljóna ára gamall.
The Guardian hefur eftir Patrick Schultheiss, skordýrafræðingi við Würzburg háskólann í Þýskalandi og Hong Kong háskóla að maurar gegni svo sannarlega mikilvægu hlutverki í nær öllum vistkerfum í jarðvegi. Hann er einn aðalhöfunda rannsóknarinnar sem hefur verið birt í vísindaritinu Proceedings of the National Academy of Science.
Schultheiss sagði að maurar gegni mikilvægu hlutverki hvað varðar niðurbrot gróðurs, dreifingu fræja og fleira tengt jarðveginum. Maurar séu auk þess mjög fjölbreyttur hópur skordýra þar sem hinar mismunandi tegundir sjái um ákveðin verkefni. En fyrst og fremst sé það hinn mikli fjöldi þeirra sem geri þá að einum af aðalleikendunum í náttúrunni.
Það eru rúmlega 12.000 þekktar maurategundir í heiminum. Almennt eru maurar svartir, brúnir og rauðir og líkami þeirra skiptist í þrjá hluta. Þeir eru allt frá 1 mm til 3 cm að lengd.