OnlyFans-stjarna að nafni Alaska Clarke hefur verið gagnrýnd harðlega eftir myndband sem hún birti á samfélagsmiðlinum TikTok. Í myndbandinu segir Clarke að hún hafi verið að senda nektarmyndir á ókunnuga menn í gegnum AirDrop, þjónustu sem gerir notendum Apple tækja kleift að deila myndum og öðru efni þráðlaust. Clarke gefur í skyn með hljóðinu sem hún notar í myndbandinu að hún sendi nektarmyndirnar til þess að reyna við menn.
Myndbandið hefur vakið töluverða athygli en það hefur verið spilað rúmlega 3,6 milljón sinnum á miðlinum. Þá hafa rúmlega 410 þúsund manns sett hjarta við það. Það þýðir þó ekki að öll séu ánægð með það.
@imalaskaclarke_♬ original sound – x.c41tl1n.x
Í athugasemdunum er Clarke nefnilega harðlega gagnrýnd fyrir athæfið. Fólk bendir henni meðal annars á að hún gæti sent nektarmyndirnar á fólk sem vill ekki fá þær og að það sé þá kynferðisbrot. Þá er henni einnig bent á að hún gæti sent myndirnar á börn.
„Ég er nokkuð viss um að þetta sé ólöglegt,“ segir til að mynda í einni athugasemd við myndbandið en fjölmörg taka í svipaða strengi. „Það eru bókstaflega börn þarna og gift fólk,“ segir svo í annarri athugasemd. „Þetta er kallað glæpur,“ segir í enn annarri athugasemd.
Einnig velta netverjar því fyrir sér í athugasemdunum hvað myndi gerast ef karlmaður gerði það sama, það er myndi senda nektarmyndir af sér á ókunnugar konur á flugvelli. „Ef karlmaður myndi gera þetta þá væri það risastórt vandamál,“ segir til dæmis einn netverji en þá bendir annar netverji á að þetta sé einmitt risastórt vandamál, sama af hvaða kyni sá sem gerir þetta er.