Áhorfendur á hafnaboltaleik Oakland Athletics gegn New York Mets, sem og fólk sem fylgdist með heima í stofu, fylltust óhug er þeir tóku eftir skælbrosandi konu sem sat í stúkunni. „Hvað í fjandanum er í gangi þarna?“ spurði til að mynda einn netverji í athugasemdunum við myndband af konunni á Twitter.
Konan í gula bolnum hreyfði varla vöðva lengst af en brosti sínu breiðasta og starði stjörf í myndavélina sem var að taka leikinn upp. Það leið þó ekki langur tími þar til ástæðan fyrir brosinu kom í ljós.
Uh, welcome to Oakland? pic.twitter.com/Zn6mu45t5P
— SNY (@SNYtv) September 24, 2022
Þrátt fyrir að brosandi konan væri nokkuð ógnvekjandi voru netverjar nefnilega fljótir að leggja tvo og tvo saman. Þeir bentu á að um gæti verið að ræða öðruvísi markaðssetningu á nýrri hryllingsmynd sem heitir einmitt „Smile“ eða „Brostu“ eins og hún myndi eflaust kallast ef RÚV myndi sýna myndina. Þegar líða fór að lokum leiksins stóð konan upp og þá stóð í stórum stöfum „SMILE“ á bolnum hennar en það staðfesti grunsemdir netverja að hún tengdist hryllingsmyndinni.
Coming to you LIVE from the game pic.twitter.com/1pOEvG9Q3A
— Jayne (@Jayne) September 24, 2022
Konan í gula bolnum er ekki ein um að hafa mætt á hafnaboltaleik til þess eins að brosa og stara í myndavélina. Dæmi er um að karlmaður í bláum bol hafi gert einmitt það sama og konan, en það stóð þó ekki neitt á bolnum hans. Líklega var hann þó samt hluti af markaðssetningunni, ekki nema hann hafi bara verið svona afskaplega ánægður með að vera staddur á leiknum.
Dude in the blue, you’re scaring everybody pic.twitter.com/x0e4ekCLM4
— Steve Perrault (@Steve_Perrault) September 23, 2022