Ástarmál raunveruleikastjörnunnar og athafnakonunnar Khloe Kardashian hafa verið mikið í umræðunni undanfarið eftir að enn einu sinni slitnaði upp úr sambandi hennar og barnsföður hennar, Tristan Thompsons, en sá síðarnefndi hafði ítrekað haldið framhjá raunveruleikastjörnunni og jafnvel feðrað barn með annarri konu á meðan hann og Khloe voru í miðju ferlinu að koma sínu öðru barni í heiminn með aðstoð staðgöngumóður.
Khloe var stödd á Ítalíu um helgina þar sem hún mætti til að fylgjast með tískupöllunum á tískuvikunni í Mílanó. Vakti það töluverða athygli þegar mynd birtist af Khloe láta vel að ítalska hjartaknúsaranum Michele Morrone. Khloe og Michele sátu hlið við hlið og á mynd sem leikarinn myndarlegi deildi á Instagram voru þau saman baksviðs þar sem hann vafði handlegg utan um hana og virtist vera að hvísla í eyra hennar.
Síðar fór myndband í dreifingu þar sem þau sáust dansa náið saman í eftirpartý.
Michele Morrone er helst þekktur fyrir erótísku dramamyndina 365 days og framhaldi hennar. Hann ákvað 11 ára gamall að verða leikari eftir að hann horfði á Harry Potter mynd. Hann spilar líka á gítar og syngur og hefur gefið út tónlist. Hann hannar líka strandfatnað fyrir konur með merkinu AurumRoma. Þegar merkið fór fyrst í sölu árið 2020 hrundi vefsíðan út af vinsældum.
Nú verður fróðlegt að sjá hvort að hann og Khloe séu farin að stinga saman nefjum enda eru þau bæði athafnafólk í mikilli sókn, bæði gullfalleg, vinsæl og vita hvað þaú vilja.