Cassie Chadwick var aðeins fjórtán ára gömul þegar hún opnaði sinn fyrsta bankareikning, vopnuð fölsuðu skjali um veglega arf. Með því hófst slóð svindls og fjármálamisferlis sem átti eftir að festa nafn Cassie rækilega í sessi sem eins afkastamesta svikahrapps sögunnar.
Cassie var fædd Elizabeth Bigley árið 1857 í Ontario í Kanada. Ferilinn hófst þó brösuglega og var Cassie handtekin fljótlega eftir opnun fyrsta reikningsins. Þó ekki fyrr en eftir að hafa svikið góða summu út úr bankanum. Cassie var þó fljótlega sleppt og tók hún þá upp á að ganga á milli verslana og kynna sig sem erfingja að milljónum og veifaði hún nafnspjöldum sem hún hafði látið prenta því til sönnunar. Cassie tókst að svíkja gríðarlegt magn af vörum út úr dýrustu verslunum Ontario áður en hún náðist aftur.
Sat hún í steinunum í nokkurn tíma en þegar að Cassie losnaði ákvað hún að skipta um umhverfi og halda til Bandaríkjanna.
Tólf daga hjónaband
Cassie var 23 ára þegar hún kom til Cleveland í Ohio og hóf að selja þjónustu sína sem miðill undir nafninu Madame Lydia DeVere. Hún gekk í hjónaband með lækni að nafni Wallace S. Springsteen en læknirinn átti engan vegin von á þeim mannfjölda sem bankaði upp á og krafðist þess að Cassie greiddi þeim fé sem hún skuldaði.
Eiginmaðurinn nýbakaði henti brúði sinni út, greiddi þó upp skuldir hennar, en fór svo fram á skilnað. Entist hjónabandið í 12 daga.
Dáleiðandi
Cassie hóf því aftur að miðla að handan og kallaði sig nú ýmist Madame Marie LaRose og Lydiu Scott. Hún gekk aftur í hjónaband, nú með bónda nokkrum, en fékk leið á lífinu á sveitabænum og skildi. Fann hún sér þriðja eiginmanninn, vellauðugan kaupsýslumann, C. L. Hoover að nafni. Þau áttu son sem Cassie sendi til foreldra sinn í Kanada og þegar að C.L. lést og arfleiddi Cassie að stórum fjárhæðum var henni frjálst að halda áfram á sinni vafasömu braut.
Cassie kallaði sig nú Mademoiselle Lydiu Devere og lifði hátt. Hún hafði mokað sitt hratt í gegnum arfinn og fjármagnaði lífsstíl sinn á kostnað auðmanna sem hún sveik út fé á margvíslegan hátt.
Svo fær var Cassie í að ljúga út fé að mörg fórnarlömb hennar sóru fyrir hafa verið dáleidd.
Eiginmaður fjögur
Árið 1889 var Cassie handtekin fyrir skjalafals og dæmd til níu og hálfs árs fangelsisvistar en sleppt eftir að hafa afplánað helming dómsins. Tók hún nú upp nafnið Cassie Hoover og hóf að reka hóruhús í fínni kantinum. Þar hitti hún sinn fjórða eiginmann, annan lækni, Leroy Chadwick að nafni. Sagði hún lækninum að hún væri fátæk ekkja sem hefði tekið að sér að sjá um ,,stúlknaheimili.” Þegar að læknirinn benti henni á að stúlknaheimilið væri vændishús ,,leið yfir” ekkjuna góðu sem bað lækninn að bjarga sér með hraði úr þessu syndabæli.
Það gekk eftir og gengu þau í hjónaband árið 1897.
Upphófst þá líflegasta svindltímabilið í lífi Cassie.
Pýramídasvindl
Hún tók að sér að sjá um fjármál þeirra hjóna. Eignir læknisins voru að langmestu leyti bundnar í fasteignum en fasteignaverð lækkaði ört á þessum tíma. Cassie greip þá til sinna ráða og hóf að fá gríðarmiklar upphæðir að láni frá bönkum undir því yfirskini að vera frænka milljarðamæringsins Andrew Carnegie og falsaði hún nafn hans á skjöl og veðbókarvottorð.
Hún notaði lánsfé frá einum banka til að tryggja lán frá öðrum og tókst þar með að byggja upp sitt prívat pýramídasvindl út um allt Ohio fylki.
Um svo gríðarlega háar upphæðir var að ræða að einn bankinn fór meira að segja á hausinn eftir fjármálagjörninga Cassie.
Átta sérsmíðuð píanó
Cassie lifði hátt og gekk undir nafninu ,,Drottning Ohio.” Hún átti meðal annars gríðarlegt safn skartgripa, átta sérsmíðuð píanó og tólf málverkaramma úr 24 karata gulli.
En lukkan rann Cassie út greipum og árið 1904 kærði einn bankanna hana. Lögregla yfirheyrði Andrew Carnegie sem ekkert vildi við meinta frænku kannast. Þegar að Cassie frétti af ferðum lögreglu flúði hún til New York með þrjár og hálfa milljón dollara að núverði innanklæða en var handtekin við komuna til borgarinnar.
Fangelsi og dauði
Réttarhöldin yfir Cassie vöktu gríðarlega athygli og fjölluðu blöð um hvert smáatriði réttarhaldanna. Þegar Cassie var dæmd til tíu ára tugthúsvistar árið 1905 fékk hún móðursýkiskast í réttarsal áður en það leið yfir hana. Hún áfrýjaði dómnum án árangurs.
Cassie hóf afplánun þann 12. janúar 1906, niðurbrotin á sál og líkama. Hún neitaði að nærast í fangelsinu og lést ári síðar, 51 árs að aldri.