Einbýlishús hannað af arkitektinum Kjartani Sveinssyni í Arnarnesi fæst nú keypt ásamt einum glæsilegast garði Garðabæjar.
Um er að ræða ótrúlega falleg einbýlishús á einni hæð sem er skráð um 199,8 fermetrar að stærð og þar af er rúmlega 40 fermetra bílskúr. Garðurinn sem fylgir eigninni þykir einn sá glæsilegast í Garðabæ og hefur í tvígang fengið viðurkenningu bæjarstjórnar fyrir smekklega og vel hirta lóð.
Samkvæmt fasteignaauglýsingu hefur húsinu ávallt verið vel við haldið og hafa töluverðar endurbætur átt sér stað undanfarin ár. Til dæmis var húsið tekið í gegn að utan árið 2010 og þá sprunguviðgert og endurmúrað að mestu. Baðherbergi var endurnýjað 2016 og parket slípað á síðasta ári. Eins er búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíl og flestir ofnar endurnýjaðir.
Á glæsilegri veröndinni má svo að sjálfsögðu finna heitan pott.