fbpx
Þriðjudagur 07.janúar 2025
Fréttir

Erla Bolladóttir fær ekki endurupptöku

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 20. september 2022 15:44

Erla Bolladóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Endurupptökudómstóll hefur hafnað beiðni Erlu Bolladóttur um að dómur þar sem hún var fundinn sek um rangar sakargiftir, frá árinu 1980, verði endurupptekinn. Umræddur dómur féll í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálið en við rannsókn málsins hafði Erla bent á svokallaða Klúbbsmenn, sem mögulega sakborninga sem varð til þess að umræddir menn voru hnepptir í langt gæsluvarðhald.

Erla hefur haldið því fram að hún hafi verið beitt gífurlegum þrýstingi að benda á einhvern. Þetta féllst endurupptökudómstóll ekki á og sagði engin ný gögn eða upplýsingar fram komin sem hefðu skipt verulegu máli fyrir niðurstöðu málsins og ekki heldur hafi verið sýnt að lögregla, ríkið eða aðrir hafi framið refsiverða háttsemi við niðurstöðuna eða að vitni hefðu farið vísvitandi með rangt mál.

Ekki hafi verið leitt í ljós að sönnunargögn hafi verið rangt metin eða að verulegur gallar hafi verið á meðferð málsins.

Erla þarf nú að greiða skipuðum verjanda sínum ríflega þrjár milljónir í þóknun.

Endurupptökunefnd ákvað árið 2017 að mál allra sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmáli skyldu fara aftur fyrir dómstóla. Mál Erlu var ekki þar á meðal og í kjölfarið stefndi hún íslenska ríkinu.

Erla var sakfelld fyrir rangar sakargiftir ásamt Kristjáni Viðari Júlíussyni og Sævari Marínó Ciesielski fyrir að hafa bent á þá Magnús Leópoldsson, Einar Bollason, Valdimar Olsen og Sigurbjörn Eiríksson – svonefnda Klúbbsmenn – og sagt þá hafa átt þátt í hvarfi Geirfinns Einarssonar.

Í beiðni sinni um endurupptöku sagði Erla að hún hafi verið beitt þrýstingi af lögreglu og rannsóknardómara um að hún ætti að gangast við rannsóknartilgátum þeirra um að Klúbburinn og þá sérstaklega Magnús Leópoldsson væru viðriðnir hvarf Geirfinns. Hún hafi smám saman látið undan og gefið þær skýrslur sem að henni var lagt að gefa. Hún hafi ekki upplifað sig frjálsa og bersýnilega verið undir gríðarlegum þrýstingi og upplifað réttmætan ótta, meðal annars um að vera aftur skilin að frá dóttur sinni, líkt og hún hafi verið þegar hún var fyrst hneppt í gæsluvarðhald út af Guðmundar- og Geirfinnsmáli en í því varðhaldi sat hún í 239 daga. Hún hafi því talið sig háða lögreglunni sem hún taldi hafa ákvörðunarvald yfir lífi hennar.

Endurupptökudómstóll bendi á að þeir sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem hafa nú veri sýknaðir með endurupptöku mála þeirra hafi verið sýknaðir af þeim ásökunum að þeir hafi átt þátt í hvarfi þeirra Guðmundar og Geirfinns. Erla hafi aldrei verið sakfelld fyrir það brot heldur hafi hún verið sýknuð af þeim sökum þegar aðrir voru sakfelldir. Benti endurupptökudómstóll að dómar gegn Kristjáni Viðari og Sævari Marínó fyrir rangar sakargiftir hafi heldur ekki fengið endurupptöku.

Endurupptökudómur taldi ekkert fram komið sem hafi bent til að framburður Erlu í málinu varðandi rangar sakargiftir hafi verið þvingaður fram eða að réttarfarslög hafi verið brotin. Tóku þeir ekki heldur mark á skýrslu sálfræðings um hugarástand hennar á þessum tíma.

Ítarlega niðurstöðu endurupptökudómstóls má lesa hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Áfall fyrir Arsenal
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kastaði glasi í andlit manns á English Pub – Það reyndist honum dýrkeypt

Kastaði glasi í andlit manns á English Pub – Það reyndist honum dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Sparnaðartillögurnar halda áfram að streyma inn – Vilja leggja niður íslenskuna og Seyðisfjörð

Sparnaðartillögurnar halda áfram að streyma inn – Vilja leggja niður íslenskuna og Seyðisfjörð
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Zelenskyy segir að mikill fjöldi rússneskra og norðurkóreskra hermanna hafi fallið síðustu daga

Zelenskyy segir að mikill fjöldi rússneskra og norðurkóreskra hermanna hafi fallið síðustu daga
Fréttir
Í gær

Ótrúlegar myndir – Skarfur sporðrenndi stærðarinnar gullfiski í tjörn við Norðlingabraut

Ótrúlegar myndir – Skarfur sporðrenndi stærðarinnar gullfiski í tjörn við Norðlingabraut
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Söfnun hafin fyrir syni Árna sem lést eftir að bíll hans féll í Reykjavíkurhöfn – „Árni lætur eftir sig tvo yndislega drengi“

Söfnun hafin fyrir syni Árna sem lést eftir að bíll hans féll í Reykjavíkurhöfn – „Árni lætur eftir sig tvo yndislega drengi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðlaunateiknari hættir eftir að Washington Post neitaði að birta skopmynd – Sýndi Bezos krjúpa fyrir Trump

Verðlaunateiknari hættir eftir að Washington Post neitaði að birta skopmynd – Sýndi Bezos krjúpa fyrir Trump
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ákvað að fara ekki í bæinn á gamlárskvöld heldur vera heima og ná myndbandi af ótrúlegu samspili

Ákvað að fara ekki í bæinn á gamlárskvöld heldur vera heima og ná myndbandi af ótrúlegu samspili