fbpx
Fimmtudagur 10.apríl 2025
433Sport

Segja ágreining á milli Ten Hag og æðstu manna – Ósammála um næstu skref

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 19. september 2022 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erik ten Hag, stjóri Manchester United er ósammála eigandanum Joel Glazer og Richard Arnold, stjórnarformanni, um næstu skref félagsins á félagaskiptamarkaðnum. Mirror segir frá þessu.

Ten Hag tók við United í sumar og styrkti liðið vel. Hann fékk til liðs við sig menn á borð við Antony, Casemiro, Lisandro Martinez og Tyrell Malacia á háar fjárhæðir.

Hollenski stjórinn telur að rétt skref væru að halda áfram að styrkja liðið í janúar. Glazer og Arnold vilja hins vegar bíða fram á næsta sumar og treysta á þá leikmenn sem nú eru hjá félaginu til að klára þetta tímabil.

Það er spurning hvort þetta verði ágreiningsmál á næstu vikum á Old Trafford.

United hefur staðið sig afar vel undanfarið eftir arfaslaka leiki í upphafi tímabils. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með tólf stig og hefur unnið fjóra leiki í röð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Elín Metta komin heim
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Kostulegt atvik í vikunni – Stal miðanum sem Elísabet hafði skrifað

Kostulegt atvik í vikunni – Stal miðanum sem Elísabet hafði skrifað
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Real Madrid sagt ætla að henda Ancelotti út í sumar

Real Madrid sagt ætla að henda Ancelotti út í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Settur í bann fyrir að gefa Grealish kinnhest

Settur í bann fyrir að gefa Grealish kinnhest
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Völdu 100 bestu markmenn í heimi út frá tölfræði – Onana kemst ekki á blað

Völdu 100 bestu markmenn í heimi út frá tölfræði – Onana kemst ekki á blað
433Sport
Í gær

Konan fékk skvettu yfir andlitið í beinni – Kallað eftir brottrekstri eftir ummælin um brund sem féllu á eftir

Konan fékk skvettu yfir andlitið í beinni – Kallað eftir brottrekstri eftir ummælin um brund sem féllu á eftir
433Sport
Í gær

Kallar eftir marklínutækni í Bestu deildinni eftir draugamarkið í Garðabæ – Furða sig á því hversu rólegur Heimir var

Kallar eftir marklínutækni í Bestu deildinni eftir draugamarkið í Garðabæ – Furða sig á því hversu rólegur Heimir var