Ef svo er þá gæti verið að þú hafir orðið fyrir barðinu á „hárkollugenginu“. Þetta er hópur þriggja þjófa sem herjaði á farþega járnbrautarlesta og stálu mörg hundruð töskum og veskjum frá þeim.
Mánuðum saman reyndi lögreglan í Marseille að hafa hendur í hári þeirra en það gekk erfiðlega að hafa uppi á þeim en nýlega tókst loks að hafa hendur í hári gengisins. Í því eru þrír menn sem höfðu fyrir vana að setja á sig hárkollu áður en þeir létu til skara skríða. The Guardian skýrir frá þessu.
Þrír miðaldra karlmenn eru nú í haldi lögreglunnar, grunaðir um að vera félagar í „hárkollugenginu“. Lögreglan vinnur nú að því að koma rúmlega 150 ferðatöskum og 170 veskjum til réttmætra eigenda en þetta fannst hjá þremenningunum.
Meðal munanna er kventaska sem í eru skartgripir að verðmæti 50.000 evra og 137.000 evrur í reiðufé.
Einnig fann lögreglan dýr sólgleraugu, úr, skó og myndavélar á lager þjófanna.
David Brugére, fulltrúi lögreglunnar, sagði á fréttamannafundi að þjófarnir væru færir í sínu fagi og mjög snöggir þegar þeir væru að störfum.
Hann sagði að þeir hafi notað hákollur og klætt sig sem konur. Síðan hafi þeir komið sér fyrir nærri fórnarlömbum sínum áður en þeir stálu töskum og veskjum þeirra.
Þjófarnir létu að sér kveða á leiðunum á milli Parísar og Nice, Parísar og Marseille og Lyon og Genove.