ABC News og fleiri miðlar skýra frá þessu. Fram kemur að það hafi verið í október 2020 sem Taylor réðst á Regan sem var langt gengin með barn sitt. Taylor stakk hana rúmlega 100 sinnum. En þar með var níðingsverkinu ekki lokið því Taylor risti kvið Regan upp og tók barnið.
Kelley Crisp, saksóknari, segir að Taylor hafi ekki viljað verða móðir, þetta hafi hins vegar átt að koma í veg fyrir að unnusti hennar færi frá henni. Hún sagði kviðdómi að í tíu mánuði hafi Taylor þóst vera barnshafandi. Hún falsaði gögn um það og skrifaði um meðgönguna á samfélagsmiðlum. Á sama tíma var hún að leita að fórnarlambi.
Crisp sagði einnig að Taylor væri „leikari af bestu gerð, þar sem lygar og svik voru daglegt brauð og enduðu með morði“.
Eftir morðið ók Taylor með barnið á sjúkrahús. Barnið lést skömmu eftir komuna þangað. Taylor er því einnig ákærð fyrir morð á barninu sem og mannrán.
Hún gat ekki sjálf orðið barnshafandi. Að sögn vitna hafði hún reynt að greiða staðgöngumóður 100.000 dollara og hafði sagt unnusta sínum að þau myndu eignast barn. Degi eftir að barnið þeirra átti að koma í heiminn, eftir því sem hún sagði unnusta sínum, myrti hún Regan.
Taylor neitar sök. Ef hún verður sakfelld á hún dauðadóm eða ævilangt fangelsi yfir höfði sér.