Eins og DV skýrði frá í sumar þá voru líkin í ferðatöskum sem nýsjálensk fjölskylda keypti á uppboði í Auckland.
Dularfulla ferðatöskumálið vindur upp á sig – Tvö barnslík fundust
Í töskunum voru lík tveggja barna sem eru talin hafa verið á aldrinum fimm til tíu ára þegar þau létust.
Konan kom til Suður-Kóreu fyrir nokkrum árum og hefur ekki yfirgefið landið síðan.
Lögreglan á Nýja-Sjálandi hóf strax að rannsaka málið í sumar og eftir nokkra daga tókst að tengja konu, búsetta í Suður-Kóreu, við börnin. Var talið að hún væri skyld þeim. Nú telur lögreglan að hún sé móðir þeirra.
Lögreglan á Nýja-Sjálandi segir að líkin hafi hugsanlega verið í töskunum í mörg ár og það hafi gert rannsóknina erfiða og flókna.
Ekki verður skýrt frá nafni konunnar en það er gert til að upplýsingar um börnin verði ekki opinberar.
Suðurkóreskur dómstóll mun taka ákvörðun innan tveggja mánaða um hvort konan verði framseld til Nýja-Sjálands.