Dómstólllinn féllst á kröfu saksóknara um að Ali skyldi dæmdur til ótímabundinnar fangelsisvistar því hann sé svo hættulegur umhverfi sínu að nauðsynlegt sé að hann sé á bak við lás og slá. Hann mun afplána dóminn í Herstedvester fangelsinu en það er öryggisfangelsi og geðdeild fyrir fanga sem hafa verið dæmdir til ótímabundinnar vistunar í fangelsi og aðra hættulega fanga. Starfsfólk fangelsisins býr yfir langri reynslu af vistun og meðferð kynferðisbrotamanna.
B.T. segir að Ali hafi verið fundinn sekur um að hafa nauðgað 14 ára stúlku og 17 ára stúlku í íbúð í Lyngby sumarið 2021. Þar hafði hann einnig í hótunum við tvær aðrar stúlkur og frelsissvipti þær. Hann var einnig fundinn sekur um skemmdarverk og rán.
Yngri stúlkan kynntist Ali í Kristjaníu þar sem hann seldi hass en það hafði hann gert árum saman.
Ali áfrýjaði dómnum til Landsréttar.