fbpx
Laugardagur 19.apríl 2025
Fréttir

Mikil aukning á tilkynningum um nauðganir milli ára – Að meðaltali 21 nauðgun á mánuði

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. september 2022 12:35

Mynd/Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. Í skýrslunni má finna upplýsingar um tilkynningar til lögreglu vegna kynferðisbrota fyrstu sex mánuði ársins.

Í fréttatilkynningu kemur fram að alls voru skráðar  um 125 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2022, sem samsvarar 28% fjölgun frá því í fyrra.  Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fjölgar skráðum nauðgunum um 30%.  Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um 21 nauðgun á mánuði hjá lögreglunni.

Áhersla á að fækka brotum og fjölga tilkynningum

Í málaskrá lögreglunnar vegna kynferðisbrota er bæði skráð hvenær brot eru tilkynnt og hvenær þau áttu sér stað.  Ástæða þess er að oft líður tími á milli þess að brotið á sér stað og tilkynnt er um það til lögreglu. Þegar horft er til tíma brots, var tilkynnt um 83 nauðganir sem áttu sér stað fyrstu sex mánuði ársins eða 14 nauðganir á mánuði, sem samsvarar 1% fækkun frá því í fyrra. Þegar skoðuð er tímasetning nauðgana eftir árum og embættum um helgar þá á 66% þeirra sér stað á höfuðborgarsvæðinu og 65% þeirra frá 18:00-06:00 að morgni.

Nær línulegur vöxtur var í tilkynntum nauðgunum frá 2010. Þeim fækkaði þó verulega á meðan sóttvarnartakmarkanir stóðu sem hæst í Covid-19 heimsfaraldrinum. Þegar losað var aftur um takmarkanir fjölgaði tilkynntum nauðgunum til lögreglunnar á nýjan leik.

Vitundarvakning dómsmálaráðuneytisins, Neyðarlínunnar, ríkislögreglustjóra, lögreglunnar og fjölda annarra samstarfsaðila undir slagorðunum „Verum vakandi“ og „Góða skemmtun“ sem hófst í mars og lauk nú um miðjan ágúst var því beint sérstaklega að skemmtanalífinu og viðburðum með það tvíþætta markmið að fækka brotum og fjölga tilkynningum til lögreglunnar.

Mikil aukning tilkynninga vegna kynferðislegrar áreitni

Lögreglan skráði í allt 328 tilkynningar um kynferðisbrot á tímabilinu, sem samsvarar 5% fjölgun frá síðustu þremur árum þar á undan.  Ef borið er saman við fyrstu sex mánuði ársins 2021 fækkar í heildina skráðum kynferðisbrotum um 9% á milli ára.  Skráðum blygðunarsemisbrotum og kynferðisbrotum gegn börnum fækkar. Brot vegna kynferðislegrar áreitni og brot gegn kynferðislegri friðhelgi heldur hins vegar áfram að fjölga, og voru 64 á tímabilinu. Til samanburðar var tilkynnt um 36 brot að jafnaði síðustu þrjú ár þar á undan, eða aukning um 78%.

Meðalaldur grunaðra er 35 ár og var 95% þeirra karlar, þar af 33% undir 25 ára.

Ríkislögreglustjóri birtir ársfjórðungslega tölfræðiupplýsingar um kynbundið ofbeldi, kynferðisbrot og heimilisofbeldi í samræmi við áherslur dómsmálaráðherra um aukna vitundarvakningu um kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum
Fréttir
Í gær

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vitni segja dótturina hafa beitt foreldra sína líkamlegu ofbeldi

Vitni segja dótturina hafa beitt foreldra sína líkamlegu ofbeldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar