Stephanie og Billy Ledbetter, kynntust á flugvelli árið 2004 og giftu sig aðeins hálfu ári síðar. Þau voru nokkuð ung þegar þau giftust, Stephanie var 18 ára og Billy var 21 árs. Þau höfðu verið gift í 17 ár þegar Billy sagði að hann vildi prófa að bjóða öðru fólki í svefnherbergið þeirra. „Við vorum að prófa öll kynlífsleikföng sem hægt er að kaupa á netinu. Maðurinn minn vildi hrista aðeins upp í kynlífinu svo hann sagði mér frá þessu,“ segir Stephanie í samtali við Daily Star.
„Mér fannst þetta ekkert skrýtið, ég sagði honum bara að gefa mér viku til að skoða þetta betur,“ segir Stephanie enn fremur en eftir að hafa hugsað málið ákvað hún að slá til og stunda makaskipti.
Áður en þau byrjuðu ákváðu þau þó að segja skilið við trúnna en þau gengu bæði úr kirkjunni sinni. Í viðtalinu við Daily Star er ekki sagt frá því í hvaða söfnuði þau voru en svo virðist vera sem hann hafi haft mikil áhrif á líf þeirra. Þau segja til að mynda að trúin hafi haldið þeim frá því að lifa lífinu sínu eins og þau vildu.
Þau segja að sambandið þeirra blómstri í dag eftir að þau prófuðu að stunda makaskipti. „Sem par erum við búin að læra miklu meira um samþykki og samskipti heldur en við gerðum í kirkjunni og á meðan við vorum að alast upp,“ segir Stephanie. „Við erum opin með allt saman núna og tengslin okkar ná miklu dýpra heldur en áður en við byrjuðum að stunda makaskipti.“
Stephanie segir þá að eftir fyrsta skiptið þeirra með öðru fólki hafi þeim strax liðið miklu betur. „Það var eins og þungri byrði væri af okkur létt,“ segir hún og meinar það bæði bókstaflega og ekki. „Ég missti rúm 9 kíló á næstu manuðum og eiginmanninum mínum líður miklu betur í vinnunni.“