Biden sagði að Trump og stuðningsfólk hans, Maga Repúblikanar, séu fulltrúar öfgahyggju sem ógni grundvelli lýðræðis í Bandaríkjunum: „Maga Repúblikanar virða ekki stjórnarskránna. Þeir trúa ekki á lögin. Þeir virða ekki vilja fólksins. Þeir neita að viðurkenna úrslit frjálsra kosninga.“
Maga er skammstöfun fyrir slagorð Trump: „Make America Great Again.“
„Maga-öflin eru staðráðin í að færa þetta land aftur á bak. Aftur á bak til Bandaríkja þar sem enginn kosningaréttur verður, enginn réttur til einkalífs, enginn réttur til getnaðarvarna, enginn réttur til að giftast þeim sem þú elskar,“ sagði Biden.
Hann hvatti fólk til að nýta kosningarétt sinn í nóvember og lýsti yfir miklum áhyggjum af frambjóðendum Maga Repúblikana og sagði þá ógn við lýðræðið. „Þeir dásama einræðisherra og pólitískt ofbeldi. Þeir eru ógn við persónuleg réttindi, réttlæti, lög og reglu, við sál þessa lands,“ sagði Biden.
Kosið verður um öll þingsætin í fulltrúadeildinni í nóvember og þriðjung sæta í öldungadeildinni. Demókratar eru nú með meirihluta í báðum deildum, nauman þó. Oft er það þannig að flokkur sitjandi forseta tapar í kosningunum á miðju kjörtímabili hans og þannig verður erfitt fyrir forsetann að koma málum sínum í gegn. Biden hefur ekki verið mjög vinsæll á kjörtímabilinu en samt sem áður virðist staða Demókrata ekki vera eins slæm og margir höfðu óttast.
Í nýrri könnun the Wall Street Journal sögðu 47% að þeir myndu kjósa Demókrata ef kosið væri núna en 44% sögðust kjósa Repúblikana.
Niðurstaða hæstaréttar frá í júní þar sem hann afnam í raun réttindi kvenna til þungunarrofs og lagði það í hendur einstakra ríkja að taka ákvörðun um það hefur mælst illa fyrir í Bandaríkjunum og virðist sem stuðningur við Demókrata hafi aukist í kjölfar niðurstöðu hæstaréttar. Stuðningsmenn Trump og aðrir íhaldssamir Repúblikanar hafa fagnað niðurstöðunni mjög en þegar upp er staðið þá gæti hún komið þeim í koll.
Þá virðist Trump vera í nokkrum mótvindi þessa dagana vegna ýmissa rannsókna sem eru í gangi á vegum yfirvalda og beinast að honum. Er þá skemmst að minnast húsleitar alríkislögreglunnar FBI á heimili Trump í Flórída í ágúst en þar fundust leyniskjöl sem forsetinn fyrrverandi átti ekki að vera með í fórum sínum.