Sky News skýrir frá þessu. Allt hófst þetta að sögn þegar flugmaðurinn neitaði að fylgja fyrirmælum flugstjórans. Þá kom til handalögmála þeirra á milli og héldu þeir fast í hálsmál hvors annars. Annar þeirra sló síðan hinn í andlitið.
Áhafnarmeðlimir heyrðu að mikið gekk á í flugstjórnarklefanum og fóru inn til að reyna að ná tökum á ástandinu. Eitthvað höfðu flugmennirnir róast þegar hér var komið við sögu en samt sem áður þótti öðrum áhafnarmeðlimum ekki annað fært en að einn úr þeirra hópi sæti inni í flugstjórnarklefanum alla leiðina til Genfar til að tryggja að ekki kæmi aftur til átaka. Sá sem sat hjá flugmönnunum skrifaði síðan skýrslu um málið.
Flugið gekk áfallalaust og vélin lenti heilu og höldnu í Genf.
Sky News segir að flugmönnunum hafi verið vikið úr starfi tímabundið og bíði nú endanlegrar niðurstöðu stjórnenda flugfélagsins um hvort þeir verði reknir fyrir fullt og allt.
Franska loftferðaeftirlitið BEA gerði skýrslu um málið og fleiri mál tengd Air France. Meðal annars um eldsneytisleka úr einni vél félagsins þegar hún var á leið frá Kongó til París árið 2020. Flugmennirnir breyttu þá um stefnu en rufu ekki strauminn til hreyfilsins sem í hlut átti og þeir lentu ekki um leið og þeir gátu en það er föst öryggisregla að gera það þegar staða af þessu tagi kemur upp.