fbpx
Sunnudagur 02.febrúar 2025
Fréttir

Hárgreiðslumeistarinn Hermann Óli gengst við ásökunum – „Ég tek fulla ábyrgð að gjörðum mínum og er gersamlega eyðilagður“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 26. ágúst 2022 10:36

Hermann Óli Bachmann Ólafsson Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hermann Óli Bachmann Ólafsson, hársnyrtimeistari og eigandi hárgreiðslustofunnar Modus, hefur stigið fram og gengist við því að hafa farið yfir mörk viðskiptavinar og lofað bót og betrun. Forsaga málsins er sú að nafnlaus meðlimur hópsins Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu á Facebook , þar sem meðlimir eru um 12 þúsund talsins, birti færslu þar sem að viðkomandi sakaði vinsælan eiganda stofunnar um að hafa sýnt af sér óæskilega hegðun þar.

„Óþæginlegar snertingar og kynferðistlegt tal, öll skiptin sem ég hef farið þangað hef ég verið ónýt á eftir þar sem þetta triggerar mig mjög eftir kynferðisofbeldi sem ég hef orðið fyrir. Er í sjokki og veit ekki hvernig mér á að líða. Ég var ekki einu sinni í klippingu hjá honum. Þessi aðili er vel þekktur í bransanum,“ skrifaði viðkomandi. Í kjölfarið óskuðu fjölmargir meðlimir hópsins eftir svokölluðu hvísli í einkaskilaboðum með upplýsingum um hvern væri rætt.

Sólarhring síðar steig svo Hermann Óli fram og sagði að hvíslin væru óþörf því hann væri maðurinn sem um væri rætt.

„Ég tek fulla ábyrgð að gjörðum mínum og er gersamlega eyðilagður. Ég fór yfir mörkin og áttaði mig ekki á því sjálfur. Ég hef enga afsökun fyrir hegðum minni og mér þykir þetta mjög leitt.
Ég sé ykkur, ég heyri í ykkur og ég styð ykkur. Ég mun gera allt sem ég get til þess að lagfæra mína hegðun og er að taka stór skref núna í að leita mér aðstoðar svo þetta komi aldrei fyrir aftur. Ég og stofan mín viljum að öllum líði vel hjá okkur og upplifi öryggi og hamingju. Ég biðast aftur afsökunar á að hafa ekki veitt það,“ skrifaði Hermann Óli í færslu undir þræðinum.
Þá óskaði hann eftir því að fleiri sem teldu sig hafa neikvæða upplifun að honum myndu senda honum skilaboð svo hann gæti unnið betur í sínum málum.
Ljóst er á viðbrögðum innan hópsins að sú ákvörðun hárgreiðslumeistarans að stíga afdráttarlaust fram fellur vel í kramið og er honum hrósað í hástert fyrir viðbrögðin.
„Ég tel mig þekkja þig og veit að þú vilt ekki flugu mein og trúi að þú gerir allt til að bæta þessa hegðun. Þú ert stór karakter og er svolítið hömlulaus en ég veit að þú getur það sem þú tekur þér fyrir hendur. Ég er stolt af þér að stíga fram og taka ábyrgð,“ skrifar einn netverji og fleiri taka undir á sömu nótum og senda Hermanni Óla hvatningarorð.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hilmar undrast áhyggjur af stöðu Íslands – „Við erum í sæmilegum málum“

Hilmar undrast áhyggjur af stöðu Íslands – „Við erum í sæmilegum málum“
Fréttir
Í gær

Borgaði 5.720 krónur fyrir miðborgarbakkelsi sem smakkaðist ekki sem nýtt – Klassíski blái gúmmíhanskinn gerði útslagið

Borgaði 5.720 krónur fyrir miðborgarbakkelsi sem smakkaðist ekki sem nýtt – Klassíski blái gúmmíhanskinn gerði útslagið
Fréttir
Í gær

Harmleikurinn í Bandaríkjunum: Flugumferðarstjóri fékk að fara fyrr heim af vaktinni

Harmleikurinn í Bandaríkjunum: Flugumferðarstjóri fékk að fara fyrr heim af vaktinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reyndi að koma sér undan því að gera að fullu upp við fyrrverandi eiginkonu sína

Reyndi að koma sér undan því að gera að fullu upp við fyrrverandi eiginkonu sína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meintir byggjendur óleyfisíbúðar í Hafnarfirði fá uppreist æru

Meintir byggjendur óleyfisíbúðar í Hafnarfirði fá uppreist æru
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristinn Rúnar fékk loksins greiningu eftir sjö ára þrautagöngu – „Líkaminn var bókstaflega að öskra á hjálp“

Kristinn Rúnar fékk loksins greiningu eftir sjö ára þrautagöngu – „Líkaminn var bókstaflega að öskra á hjálp“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ekki næst í Gabriel sem sakaður er um að smygla miklu magni af kókaíni til landsins

Ekki næst í Gabriel sem sakaður er um að smygla miklu magni af kókaíni til landsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Raskanir á flugi Icelandair vegna veðurs – 30 ferðum frá landinu aflýst

Raskanir á flugi Icelandair vegna veðurs – 30 ferðum frá landinu aflýst