Nígerískur ríkisborgari, Prince Chris Tochukwu Akpaka, var í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa staðið að innfluttningi á samtals 832,24 g af kókaíni, með 51-76% styrkleika, þann 5. maí síðastlinn. Prince var farþegi í flugi frá Frankfurt í Þýskalandi og var handtekinn við komuna til landsins. Hann reyndist hafa efnin innvortist í 55 pakkningum.
Játaði maðurinn sök í málinu en í dómsorði kemur fram að ljóst sé að hann hafi eingöngu verið burðardýr í málinu. Hann játaði sök og var samvinnuþýður við úrlausn málsins og því þótti 12 mánaða fangelsisdómur, að frádregnu gæsluvarðhaldi frá 5.maí, við hæfi. Þá var Prince dæmdur til að greiða skipuðum verjanda sínum 1.395.000 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, útlagðan ferðakostnað verjanda, 24.000 krónur sem og 370.574 krónur í annan sakarkostnað
Dómur yfir nígeríska ríkisborgaranum féll þann 15. júlí síðastliðinn en degi fyrr féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness yfir öðru burðardýri frá Hollandi.
Sá aðili, Hugo Wilhelmus Gustaaf Jaliens, var gripinn í flugi frá Brussel með „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 659 grömmum af kókaíni. Hugo var staðinn að verki 15. júní síðastliðinn og hafði hann líkt og Prince, freistaði þess að fela efnin innvortis. Honum varð þó ekki kápan úr því klæðinu en í dómsorði kemur einnig fram að hann hafi játað sök og verið samvinnufús við úrlausn málsins.
Í ljósi þess að magnið var talsvert minna en hjá hinum nígeríska prins var Hugo dæmdur í 10 mánaða óskilorðsbundið fangelsis, þar sem gæsluvarðhald frá 15. júní var til frádráttar. Þá var hann dæmdur til að greiða 948.600 þúsund króna þóknun skipaðs verjanda síns og útlagðan ferðakostnað hans, 26.400 krónur. Þá þurfti hann einnig að greiða 821.902 krónur í annan sakarkostnað.