fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Auka sveigjanleika við starfslok hjá Reykjavíkurborga – Ætla að endurskoða hámarksaldur í starfi

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 25. ágúst 2022 09:59

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarráð hefur samþykkti að að grípa til aðgerða til að auka sveigjanleika starfsfólks Reykjavíkurborgar við starfslok vegna aldurs. Meðal annars var samþykkt að skoðað verði sérstaklega af hálfu borgarinnar hvernig koma megi til móts við kröfur um aukinn sveigjanleika við starfslok við undirbúning komandi kjarasamningsviðræðna. Þannig verði m.a. endurskoðaður hámarksaldur í starfi hjá Reykjavíkurborg sem er nú 70-72 ár skv. kjarasamningum borgarinnar.

Skoða sveigjanleika í báðar áttir

Borgarstjóri skipaði starfshóp um sveigjanleg starfslok í september á síðasta ári og var hópurinn skipaður fulltrúum Reykjavíkurborgar og viðsemjenda borgarinnar auk þess sem hann hafði samráð við hagaðila, m.a. öldungaráð borgarinnar. Meðal niðurstaðna starfshópsins er að skoða þurfi sveigjanleikann í báðar áttir, hann eigi ekki aðeins við um möguleikann á að hætta síðar heldur einnig að hætta eða draga úr störfum fyrir 67 ára aldur. Fram kemur að breytt aldurssamsetning þjóðarinnar og heilsufar, ákall um meira val starfsmanna varðandi starfslok og sjónarmið um að starfslok byggist ekki á aldursmismunun eða fordómum séu meðal þátta sem kalli á nýja nálgun. Einnig sé mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu þeirra sem eldri eru og að henni verði miðlað áfram til annarra starfsmanna/kynslóða.

Þróunarverkefni til tveggja ára

Tillögurnar sem samþykktar voru á fundi borgarráðs 18. ágúst fela auk framangreinds m.a. í sér að sett verður af stað þróunarverkefni til tveggja ára um sveigjanleg starfslok hjá Reykjavíkurborg. Þróunarverkefnið verður til tveggja ára, mun taka til afmarkaðra hópa starfsmanna og er starfshópi sem mun halda utan um verkefnið ætlað að gera tillögur um nauðsynlegar breytingar til að hægt verði að bjóða upp á sveigjanlegri starfslok. Í  þróunarverkefninu verður m.a. sérstaklega hugað hvernig þarfir starfsfólks fara saman með þörfum starfsstaða, hvernig koma megi til móts við þann hóp sem vinnur líkamlega erfið og slítandi störf, leiðum til að fólk geti unnið lengur en til 70 eða 72ja ára aldurs ef það óskar, hvernig auka megi sveigjanleika, s.s. með tilliti til viðveru og hvernig starfið er unnið og hlutastörfum, s.s. hvort rétt sé að auka fjölbreytni þeirra.

Reykjavíkurborg vill vera leiðandi

Reykjavíkurborg vill vera leiðandi í að skoða og þróa leiðir til að koma til móts við breyttar þarfir starfsfólks, starfsstaða og samfélagsins um starfslok vegna aldurs enda getur aukinn sveigjanleiki varðandi það hvenær og hvernig fólk lýkur atvinnuþátttöku getur leitt til bæði efnahagslegs og heilsufarslegs ábata fyrir samfélagið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur