Peningarnir dugðu til að kaupa fjóra dróna en fyrirtækið sem framleiðir drónana, Baykar, tilkynnti þá að það myndi gefa Úkraínumönnum fjóra dróna. Þá var spurningin hvað átti að gera við alla peningana. Í rúman mánuð var því haldið leyndu en fyrir viku var skýrt frá því að úkraínska varnarmálaráðuneytið og stjórnendur söfnunarinnar hefðu keypt gervihnött og aðgang að gagnabanka finnska fyrirtækisins ICEYE fyrir peningana. TV2 skýrir frá þessu.
Gervihnötturinn gerir Úkraínumönnum kleift að fá gæðamyndir allan sólarhringinn, óháð veðri.
Karsten Marrup, yfirmaður flugherdeildar danska varnarmálaskólans, sagði í samtali við TV2 að þetta séu góðar fréttir fyrir Úkraínumenn. Nú hafi þeir aðgang að eigin gervihnetti og geti notað gögn frá honum samstundis þegar þörf krefur. Hann sagði að Rússar eigi svipaða gervihnetti og því muni Úkraínumenn ekki fá neitt forskot á Rússa með þessum kaupum. En þetta geri Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir úr langri fjarlægð og veiti þeim skjótan aðgang að gögnum um hvar eitt og annað sé að finna.
Samkvæmt samningnum við ICEYE þá fær úkraínski herinn gervihnöttinn og aðgang að gagnabanka með upplýsingum úr fjölda annarra gervihnatta. Mun herinn geta notað gagnabankana í rúmlega ár.
Gervihnötturinn flýgur yfir Úkraínu tvisvar á dag. Upplausn hans er frá hálfum og upp í einn metra, háð því svæði sem er verið að mynda hverju sinni. Þetta gerir að verkum að hægt er að sjá hertól í felulitum og greina hvað um er að ræða.
Úkraínumenn hafa nú þegar aðgang að gervihnöttum en þessi gervihnöttur veitir þeim nýja möguleika því vegna skriffinnsku geta liðið allt að 36 klukkustundir þar til myndir berast frá gervihnöttum samstarfsaðila landsins. Nú verða myndirnar aðgengilegar á nokkrum klukkustundum.