fbpx
Sunnudagur 02.febrúar 2025
Fréttir

Kallar flöggun regnbogafánans við LHÍ „hálf ólystilega“ – Formaður Hinsegin daga svarar

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 24. ágúst 2022 11:01

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ole Anton Bieltvedt, dýraverndunarsinni og samfélagsýnir, segir í pistli sem birtist í Fréttablaðinu í dag að honum finnist flöggun regnbogafánans í Listaháskóla Íslands virka „dálítið yfirkeyrð“. Fáninn var dreginn að húni þann 6. ágúst síðastliðinn og hefur því verið þar í alls 18 daga, eitthvað sem Ole Anton finnst vera „hálf ólystilegt“.

„Lista­há­skólinn er auð­vitað ríkis­stofnun, þar sem á­byrg og yfir­veguð af­staða gagn­vart öllum hópum þjóð­fé­lagsins verður að gilda, og ekki á að koma til, að einn hópur sé sér­stak­lega tekinn út úr, fram fyrir aðra, og honum hampað lengur og meir en öllum öðrum,“ segir hann í pistlinum. „Ýmsir aðrir aðilar, kirkjur, stofnanir og fyrir­tæki, líka sveitar­fé­lög, virðast hafa sömu skoðun á því, að yfir hin­segin­fólki og trans fólki verði að gleðjast sér­stak­lega, og, að það beri að styðja og hampa því séstak­lega, með mál­verki regn­­boga­fána á stéttir, stíga og stræti og ó­mældri flöggun regn­boga­fánans.“

Ole Anton talar þá um að það séu fleiri minnihlutahópar til og að þeim sé ekki fagnað sérstaklega. „Til að nefna nokkra hópa þjóð­fé­lagsins, sem ein­hverja sér­stöðu hafa, saman­borið við þorra manna, má byrja á örv­hentum, sem munu vera um 10% mann­kyns. Flest tæki og á­höld og ýmiss búnaður og farar­tæki eru hönnuð fyrir hægri­henta, rétt­henta, sem kallað er, og veldur það örv­hentum oft ó­þægindum, ef ekki vand­ræðum, í þeirra dag­lega lífi,“ segir hann.

Því næst nefnir hann smávaxið fólk og hávaxið fólk. „Þá má líka líta til þeirra sem eru há­vaxnir, kannske tveggja-metra-menn, sem verða að sæta marg­vís­legum ó­þægindum, ó­rétti, þar sem hvorki dyr, stólar, rúm, bílar eða flug­vélar eru sér­stak­lega hannaðar fyrir þá,“ segir hann. „Vill ein­hver gleðjast sér­stak­lega yfir tveggja-metra-mönnum? Flagga? Mála stéttir? Skóla­meistarar, sóknar­prestar, odd­vitar?“

Þá talar Ole Anton einnig um Gleðigönguna en hann virðist ekki heldur vera afskaplega hrifinn af  henni. „Talandi um skrúð­göngur hin­segin­fólks, þá spyr ég mig oft hvað sumum þátt­tak­endum þar gengur eigin­lega til með hömlu­litlum kyn­ferðis­legum til­burðum, dansi, skaki og rúnki, fá­klæddir og strípaðir, eins og að slík hegðun sé æðsta dyggð góðra manna. Fyrir mér, oftast ó­við­eig­andi og smekk­laus fífla­gangur,“ segir hann.

„Að mati margra fer bezt á því, hver svo sem hópurinn kann að vera, að menn haldi sínum kyn­ferðis­málum fyrir sig og sinn eða sína. Haldi þeim sem sínum einka­málum, sem lítið erindi eiga á torg.“

Að lokum segist Ole Anton „þekkja góða og gegna menn sem eru hinsegin“ á sama hátt og hann þekkir fólk sem tilheyrir öðrum minnihlutahópum. „Allt fólk eins og við hin, og fyndist mér gott ef við gætum um­gengist alla jafnt, sýnt öllum, ekki þá sízt fötluðum, þroska­heftum, sjúkum og þeim sem fastir eru í hjóla­stólum, líka öllum þeim öðrum, sem eiga á annan hátt undir högg að sækja í lífinu, vel­vild, virðingu, sann­girni og leitað jafn­réttis og vel­ferðar fyrir alla,“ segir hann.

Formaður Hinsegin daga svarar

DV óskaði eftir viðbrögðum um greinina frá Gunnlaugi Braga Björnssyni, formanni Hinsegin daga, sem skrifaði þá athugasemdir sínar við greinina og birti í færslu á Facebook-síðu sinni. Gunnlaugur vekur athygli að því að það verði í raun að teljast ákveðið afrek að regnbogafáninn hafi fengið að standa svona lengi við Listaháskóla Íslands.

„Því eins og komið hefur fram hafa regnbogafánar víða verið skornir niður að undanförnu og ýmis hatursfull skemmdarverk unnin á sameiningartákni hinsegin fólks. En hvað um það. Þetta þriggja vikna fánablakt virðist fara fyrir brjóstið á greinarhöfundi sem telur að með því hampi skólinn einum þjóðfélagshópi lengur og meira en öðrum,“ segir Gunnlaugur og vekur athygli á því að Ole Anton kallar flöggunina „ólystilega.“

Varðandi skrif Ole Antons um örvhenta, smávaxna og þá sem eru yfir tveir metrar á hæð segir Gunnlaugur að Ole Anton virðist hrapa að þeirri ályktun að mannréttindi og sýnileiki sé eins konar kaka. „Stækki sneið eins hóps þá hljóti sneiðar annarra hópa að minnka. Sú er þó ekki raunin og ég leyfi mér að fullyrða að það að LHÍ flaggi fána hinsegin fólk – samfélagi þess, sýnileika og réttindabaráttu til stuðnings – varpi engum skugga á þá hópa sem greinarhöfundur gerir sérstaklega að umfjöllunarefni sínu,“ segir Gunnlaugur.

„Raunar leyfi ég mér líka að fullyrða að fáir af þeim hópum sem Ole nefnir upplifi um þessar mundir aukið áreiti, aðkast og jafnvel ofbeldi fyrir það eitt að vera – eins og hann orðar það sjálfur – „fólk eins og við hin“, þó vissulega megi gera gangskör í málefnum sumra þessara hópa. En hafi orðið bakslag í réttindabaráttu örvhentra eða hávaxinna biðst ég auðvitað forláts á þekkingarleysi mínu og legg til að fánar þeirra verði dregnir að húni hið fyrsta.“

Að lokum talar Gunnlaugur um það sem Ole Anton talar um í lok greinarinnar, Gleðigönguna og að hann þekki hinsegin fólk.

„Vegna orða Ole – sem þó þekkir „góða og gegna menn sem eru hinsegin“ – um skak, rúnk og hömlulitla kynferðislega tilburði strípaðra þátttakenda í „skrúðgöngu hinseginfólks [sic]“ hef ég eitt að segja: Gleðiganga Hinsegin daga er ekki skrúðganga. Hún er ganga gleði og samstöðu en fyrst og síðast er hún kröfuganga fyrir sýnileika og réttindum. Þátttakendur koma svo sínum boðskap á framfæri með eigin nefi – hvort sem er klæddir kraftgalla eða berir að ofan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Inga Sæland þurfi að passa sig: „Derringur er sjaldnast af hinu góða“

Segir að Inga Sæland þurfi að passa sig: „Derringur er sjaldnast af hinu góða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ætla ekki að gera úrbætur á hættulegu hringtorgi þar sem keyrt var á átta ára dreng

Ætla ekki að gera úrbætur á hættulegu hringtorgi þar sem keyrt var á átta ára dreng