Þetta kemur fram í nýjum heimildarmyndaþáttum frá Discovery um Díönu. Fram kemur að 1995 hafi hún sagt lögmanni sínum, Victor Mischon, að reynt yrði að „losna við“ hana á næstu árum.
Hún hafði ýmsar hugmyndir um hvernig henni yrði rutt úr vegi og taldi að breska hirðin myndi standa á bak við það. Það má kannski segja að það sé svolítið óhugnanlegt að ein af hugmyndum hennar var að henni yrði rutt úr vegi í bílslysi.
Hún hélt því fram að þessi kenning væri komin frá „traustum heimildarmönnum“ en vildi ekki segja Mischon hverjir það væru. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Mischon skirfaði og sagt er frá í nýju heimildarmyndaþáttunum. Minnisblaðið er þekkt sem „Mischon-minnisblaðið“ en það kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en mörgum árum eftir dauða Díönu.
Þetta örlagaríka ágústkvöld 1997 hafði Henri Paul, bílstjóri Díönu, drukkið áfengi og notað lyfseðilsskyld lyf. Hann ók á rúmlega 100 km/klst þegar hann reyndi að stinga ljósmyndara, sem voru á mótorhjólum, af. Það tókst ekki því bíllinn endaði á stórri súlu í göngum í París. Auk Díönu og Henri var Dodi Al-Fayed, unnusti Díönu, með í bílnum.
Eftir slysið kom Mischon minnisblaðinu til Sir Paul Condon, yfirlögregluþjóns, en það skilaði engum árangri. Condon stakk minnisblaðinu inn í peningaskáp þar sem það lá óhreyft þar til 2004.
Minnisblaðið, þar sem skýrt er frá áhyggjum Díönu, kom ekki aftur fram á sjónarsviðið fyrr en í janúar 2004 þegar ný formlega rannsóknin á slysinu hófst.
Þá var það John Stevens sem stýrði rannsókninni og fann fyrrgreint minnisblað. Minnisblaðið hafði þó ekki áhrif á lokaniðurstöðu rannsóknarinnar sem lá fyrir 2006. Hún var að Díana hefði alveg 100% örugglega látist af slysförum, ekki hafi verið um morð að ræða.
Margir eru ósáttir við þessa niðurstöðu og telja að litið hafi verið fram hjá minnisblaðinu og ýmsum öðrum gögnum. Michael Mansfield, lögmaður, segir að honum hafi brugðið mjög þegar hann sá umrætt minnisblað í árslok 2006. Það sé „algjörlega mikilvægasti hluturinn í rannsókninni“.