Haraldur Ingi Þorleifsson, frumkvöðull og auðkýfingur, segist hafa búist við því að hann yrði Skattakóngur Íslands í ár. Hann varð hinsvegar að „sætta sig“ við silfrið og segist stoltur taka við þeim heiðri að fá að borga tilbaka til samfélagsins sem gaf ungum fötluðum lágstéttardreng menntun og aðgang að heilbrigðiskerfi.
Þetta kemur fram í Twitter-færslu Haralds til fylgjenda sinna á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem að Haraldur nýtur vinsælda.
Eins og DV greindi frá í gær var Haraldur með mánaðarlaun uppá rúmar 102 milljónir króna á mánuði. Ástæðan var sú að fyrr á árinu seldi Haraldur Ingi fyrirtæki Ueno til bandaríska stórfyrirtækisins Twitter í fyrra og samdi við félagið um að stærstur hluti kaupverðsins yrði greiddur með launagreiðslum. Ástæðan var sú að þannig borgaði hann hæstu mögulegu skattprósentu til Íslands af söluverðinu en ljóst er að Haraldur Ingi hefði getað sparað sér hundruði milljóna með því að greiða sér kaupverðið út í arð. Hann borgar um 450 milljónir króna í heildarskatt en hefði getað nánast helmingað þá upphæð með því að taka peninginn út sem arðgreiðslu.
Þá vakti það mikla athygli að Haraldur Ingi kaus greiða skatt af sölunni á Íslandi í stað þess að fara eftir ráðleggingum skattaráðgjafa og færa söluandvirðið yfir í félag í einhverju af skattaskjólum heimsins.
Magnús Steinarr Norðdahl, sem lét af störfum sem forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail í fyrra, varð skattakóngur með 118 milljónir króna í mánaðarlaun sem helgast af sölu fyrirtækisins og uppgjöri á kaupréttarsamningi forstjórans. Kvaðst hann einnig ánægður með Skattakóngs-titilinn og því Íslendingar greinilega heppnir með auðkýfinga, að minnsta kosti í ár.
Every year tax records in Iceland are made public.
I was hoping I’d be the person that paid the highest amount in taxes last year.
But I was number 2 and I proudly accept that honor to pay back to the society that gave a working class disabled kid free education and healthcare.
— Halli (@iamharaldur) August 18, 2022