Fréttir hafa borist af því í morgun að miklar sprengingar hafi orðið í skotfærageymslum á Krímskaga. Engar upplýsingar hafa borist um hvort Úkraínumenn hafi ráðist á þær en talið er að þeir hafi ráðist á herflugvöll á Krímskaga í síðustu viku en þá urðu Rússar fyrir miklu tjóni.
Anton Gerashchenko, ráðgjafi Volodomyr Zelenskyy forseta, birti myndband af sprengingunum fyrir stundu. Hægt er að horfa á það hér fyrir neðan.
Crimea, Dzhankoy
Explosions at the ammunition depot – media in the occupied Crimea pic.twitter.com/6zowH6H6Nw
— Anton Gerashchenko (@Gerashchenko_en) August 16, 2022