Gasskorturinn tengist auðvitað stríðinu í Úkraínu og refsiaðgerðum Vesturlanda gegn Rússlandi vegna innrásar Rússa í Úkraínu.
Reuters segir að austurríska verslunarkeðjan SPAR hafi nú ákveðið að draga úr lýsingu í verslunum sínum og utan við þær. Keðjan rekur rúmlega 1.500 verslanir í Austurríki og er heildarflatarmál þeirra rúmlega 1,2 milljónir fermetra en það svarar til um 180 knattspyrnuvalla.
Með þessu mun SPAR draga úr rafmagnsnotkun um eina milljón kílóvattstunda á ári. Talsmenn keðjunnar hafa ekki viljað tjá sig um hversu mikið fé sparast með þessu.
Franska keðjan Leclerc íhugar nú að stytta opnunartíma til að forðast rafmagnsleysi. Nú þegar hefur Carrefour, verslunarkeðjan, skrifað undir samning við RTE orkufyrirtækið. Samningurinn heitir „EcoWatt Charter“ og er markmiðið með honum að draga úr rafmagnsnotkun í verslunum keðjunnar á þeim tímum dagsins sem mikið er að gera.
Í Belgíu hafa Colruyt og Ahold verslunarkeðjurnar ákveðið að grípa til orkusparandi aðgerða. Báðar keðjurnar hafa bætt úr einangrun kæla og frysta í verslunum sínum og dregið úr notkun ljósaskilta. Hjá Ahold er einnig verið að íhuga að stytta opnunartímann.