Rússneskir tölvuhakkarar hafa hótað forsvarsmönnum Fréttablaðsins að tölvuárásir verði gerðar á vefsíðu miðilsins ef að ritstjóri þess, Sigmundur Ernir Rúnarsson, biðst ekki afsökunar á mynd af rússneska fánanum sem þeir telja móðgandi. Myndin birtist í viðtal við rithöfundinn Val Gunnarsson um ástandið í Úkraínu, þar sem hann hefur dvalið um skeið. Með umfjölluninni var birt mynd þar sem sjá má einstakling traðka á rússneska fánanum.
Rússneska sendiráðið á Íslandi brást við myndbirtingunni með því að birta yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni þar sem birtingin var sögð móðgun við rússneska sambandsríkið, brot á siðareglum blaðamanna og jafnvel brot á íslenskum hegningalögum. Þá var þess krafist að ritstjórn Fréttablaðsins myndi biðjast afsökunar á myndbirtingunni. Viðbrögð ritstjóra Fréttablaðsins, Sigmundar Ernis Rúnarssonar, voru þau að vísa því alfarið á bug.
„Það er ekkert heilagt í stríði þar sem börn, mæður, gamalmenni eru drepin og heilu samfélögin lögð í rúst. Þar er fáni nánast aukaatriði enda er víða traðkað á fánum um allan heim í mótmælaskyni,“ segir Sigmundur. „Ég held að Rússar ættu fyrst og fremst að hugsa um það að koma almennilega fram við aðrar þjóðir í kringum sig heldur enn að vera að væla út af mynd í Fréttablaðinu,“ sagði Sigmundur Ernir í samtali við Vísi í gær.
Fréttablaðið greindi frá því fyrir stundu að ritstjórn blaðsins hafi borist hótunarpóstur þar sem kemur fram að ef ritstjórn blaðsins biðjist ekki afsökunar á myndbirtingu af rússneska fánanum fyrir miðnætti á Moskvutíma, sem er klukkan níu í kvöld, verði vefur blaðsins fyrir tölvuárás. Vefur miðilsins lá um tíma niðri í morgun en óvíst er hvort að það tengist umræddri hótun sem verður kærð til lögreglu.
„Við lítum þessa hótun alvarlegum augum og munum því kæra hana til lögreglu. Þetta er atlaga að fjölmiðlafrelsi í landinu og og við þetta verður ekki unað,“ segir Sigmundur Ernir.
DV er í eigu Torg ehf. sem á og rekur einnig Fréttablaðið og sjónvarpsstöðina Hringbraut. Sigmundur Ernir Rúnarsson er aðalritstjóri allra miðla félagsins.