Danska ríkisútvarpið skýrir frá þessu. Samkvæmt úrskurði dómstóls er óheimilt fyrir danska fjölmiðla að skýra frá nafni mannsins og að veita upplýsingar um bakgrunn hans, það er vinnustað og annað. Þeir hafa því aðeins sagt að hann sé á miðjum aldri og hafi starfað hjá stórum dönskum fjölmiðli.
Ákæran er 25 blaðsíður og í henni eru 40 fórnarlömb nefnd til sögunnar.
Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir tæplega 200 blygðunarsemisbrot gegn börnum á aldrinum 4 til 14 ára. Mörg málanna teygja sig aftur til 2011 og þau nýjustu eru frá því vorið 2021 en þá var maðurinn handtekinn.
TV2Øst segir að maðurinn hafi viðurkennt að hafa verið með harðan disk í sinni vörslu sem á voru rúmlega 13.000 barnaklámsljósmyndir og 1.125 myndskeið.
Samkvæmt ákærunni braut hann gegn fórnarlömbum sínum með því að taka myndir af þeim, til dæmis með faldri myndavél þegar þau voru í baði eða á klósettinu. Hans eigin börn eru á meðal fórnarlamba hans og börn sem komu í heimsókn til þeirra, þar á meðal börn vina og nágrannabörn.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir sex nauðganir á börnum.
Lisa Frandsen, saksóknari, sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að málið sé mjög alvarlegt. Brotin hafi staðið yfir í um 10 ár. Fórnarlömbin séu 40 börn, flest yngri en 12 ára.