Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fóru 4.666 að gosstöðvunum í Meradölum í gær og var mikið margmenni.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum hefur gönguleiðin reynst mörgum erfið og þurftu sumir aðstoð við að komast til baka. Í tilkynningu segir:
„Gönguleið reynist mörgum erfið og sumir þurftu aðstoð við að komast til baka og einstaka ferðamenn urðu sárir í nótt og í gær.“
Í frétt mbl.is kemur fram að ljósmyndari Morgunblaðsins sem var á staðnum í gærkvöldi hafi séð þó nokkra detta á gönguleiðinni og einnig hafi hann rekist á léttklædda Íslendinga. Hefur björgunarsveitin Þorbjörn biðlað til fólks að koma vel búið þar sem gangan geti tekið allt að sex klukkustundir og sé um 14 kílómetrar.
Í tilkynningu lögreglu segir að flestir fari upp svonefnda leið A og sé það sú leið sem viðbragðsaðilar mæli með og beini fólki að.
„Mikilvægt að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nálægt gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.“
Lögregla segir göngumönnum að klæða sig eftir veðri, muna eftir nesti og gæta þess að hafa farsíma með fullri hleðslu. Muna þurfi eftir höfuðljósum þegar fer að skyggja.
Lögregla mun í dag byrja að sekta þá sem leggja ólöglega við Suðurstrandaveg.
„Bílum skal lagt á merktum stæðum en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar. Frá og með deginum í dag mun lögregla sekta þá sem leggja ólöglega við Suðurstrandarveg. Merkingar eru til staðar og fara ekki fram hjá ökumönnum!
Virkjuð hefur verið gasdreifingarspá, sjá https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/ „
Eru göngumenn hvattir til að fylgjast með vindátt og fréttaflutningi áður en lagt er af stað.
„Veðurspá fyrir sunnudag er slæm og ekki ólíklegt að komi til lokana inn á svæðið. Það skýrist í dag og verður tilkynnt tímanlega.“