Talsvert var af fólki við eldstöðvarnar á Reykjanesi í gær og fjölgaði ferðamönnum upp úr miðnætti, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Tveir ferðamenn slösuðust í nótt og þurfti aðstoð Landhelgisgæslunnar við að flytja annan þeirra á sjúkrahús. Einnig þurftu nokkrir ferðamenn aðstoð vegna smávægilegra meiðsla.
Lögreglan bendir á að gönguleiðin að gosinu í Meradölum sé erfið og ekki fyrir alla. Tekur það göngumann um tvær klukkustundi að ganga að gosstöðvunum.
Gagnrýni kemur fram á hátterni leiðsögumanna á gosstöðvunum í nótt, í tilkynningu lögreglunnar, og er það sagt vera áhyggjuefni fyrir ferðaþjónustuna. Í tilkynningunni segir:
„Það reynist mörgum erfitt að átta sig á aðstæðum til fjalla en þarna blása kaldir vindar. Eitthvað bar á því að leiðsögumenn með ferðamenn sýndu tilmælum viðbragsaðila lítinn skilning þegar vaðið var að stað með ferðamenn sem voru illa undir það búnir að leggja í erfiða göngu. Er það áhyggjuefni fyrir ferðaþjónustuna og fyrir þá sem í sjálfboðavinnu sinna öryggisgæslu á svæðinu. Menn taki sig á.“
Jafnframt er lögreglan með þessi mikilvægu skilaboð:
„Lögregla lokar svæðum gerist þess þörf. Göngumenn taki fullt tillit til leiðbeininga og fyrirmæla frá viðbragðsaðilum. Þannig gengur okkur best.
Búið ykkur vel og takið með ykkur nesti.
Akstur utan vega er bannaður.
Varist gasmengun og kynnið ykkur leiðbeiningar á heimsíðu almannavarna https://www.almannavarnir.is/
Verum til fyrirmyndar.“