Klukkan eitt í nótt var maður handtekinn á skemmtistað í Miðborginni eftir að hann hafði hent glasi í starfsmann staðarins. Viðkomandi var vistaður í fangageymslu.
Annar maður var handtekinn í Miðborginni um klukkustund síðar en sá var ofurölvi og áreitti fólk. Hann var einnig vistaður í fangageymslu.
Einn ökumaður var handtekinn grunaður um að vera undir áhrifum áfengis.