Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag að það sé að koma meira gas úr eldgosinu sem hófst í dag heldur en í síðasta eldgosi. Elín segir að vegna þessa sé auðveldara að finna fyrir einkennum gasmengunar ef farið er of nálægt gosinu.
Þá kemur Elín með mikilvæg ráð til þeirra sem stefna á að fara að gosinu. „Mjög mikilvægt að þau sem ætla að vera eitthvað þarna á ferðinn að þau fari ekki ofan í dældir og sérstaklega ekki ofan í dalinn, þar sem að sprungan er opin, heldur haldi sig uppi á þessum hnjúkum sem eru þarna í kring og eru ágætis útsýnispallar,“ segir hún.
Ekki er búið að setja upp gasmæla á svæðinu sem tengjast netinu en það verður gert á næstu dögum. Með þeim mælum verður hægt að skoða hvernig gasmengunin er á svæðinu í rauntíma.
Samkvæmt Elínu er ekki hætta á gasmengun í byggð eins og staðan er í dag. „Mælar Umhverfisstofnunar eru ennþá í þessum byggðarlögum þarna suður með sjó og það er hægt að fylgjast með loftgæðum á loftgæði.is,“ segir hún svo.
Með breyttri vindátt gæti þó gasmengun færst í byggð en þegar það gerist þarf mögulega að skoða hvernig gasið leggst á þær byggðir sem eru í grennd við gosið.