Afar sterkur skjálfti fannst rétt í þessu víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar var í raun um að ræða 2 mismunandi skjálfta sem urðu með 30 sekúnda millibili, annar þeirra 4,8 að stærð en hinn 4,3. Tölurnar hafa þó verið á nokkru reiki síðan skjálftinn varð.
Eins og iðulega þegar stórir skjálftar verða flykkjast fjölmargir Íslendingar á samfélagsmiðla til að láta aðra vita að þeir hafi fundið fyrir skjálftanum. Margir notast þá við Twitter en þar er einnig yfirleitt að finna spéfugla sem nýta jarðskjálfta í grín.
Hér fyrir neðan má sjá það helsta sem fólk hafði að segja á Twitter um skjálftann:
Jæja best að skella í einn VÁ ÞESSI VAR ALVÖRU á online
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) July 31, 2022
vona að túristarnir á tíundu hæð á grandinu séu að fá viðeigandi aðstoð eftir þennan síðasta skjálfta
— Berglind Festival (@ergblind) August 1, 2022
Þessir jarðskjálftar eru Guð að refsa ykkur fyrir það sem þið gerðuð um helgina
— Siffi (@SiffiG) August 1, 2022
heyrðu klukkurnar í hallgrímskirkju fóru bara á fullt við þennan
— Tómas (@tommisteindors) August 1, 2022
Ók þá er manni hætt að standa á sama.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) August 1, 2022
Þennann fann ég loksins
— Kara Kristel (@karafknkristel) August 1, 2022
það þarf coolbet stuðla á þessa skjálfta. Mundi setja 50 evrur á yfir 4.5 ef ég fengi +200 á það.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) August 1, 2022
Við vælum í bænum en hvernig er þetta hjá greyið fólkinu í Grindavík 🙏
— Henry Birgir (@henrybirgir) August 1, 2022
Það er svo erfitt að eiga fugla í svona skjálftum. Þeir freaka svo mikið út
— Tommi Tanölg (@TomasJohannss) August 1, 2022
Thoughts and prayers pic.twitter.com/HFyNUbtKQh
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) August 1, 2022
Ok þessi var sá stærsti sem ég hef fundið frá því á Suðurlandi árið 2000.
— Karen Kjartansdottir (@karenkjartansd) August 1, 2022