Daily Mail heldur því fram að Cristiano Ronaldo hafi beðið um að fá samningi sínum við Manchester United rift.
Ronaldo hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Hann vill komast frá Man Utd. Portúgalinn sneri aftur til félagsins í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf það fyrir Real Madrid. Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en Man Utd hafnaði hins vegar í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Ronaldo fór ekki með Man Utd í æfingaferð til Asíu á dögunum. Sagt er að það sé af fjölskylduástæðum, þó það megi draga það í efa í ljósi sögusagna um framtíð leikmannsins.
Portúgalinn vill núna einfaldlega losna undan samningi hjá Man Utd. Hann þénar hátt í 500 þúsund pund á viku. Hann er tilbúinn að fórna því til að komast í lið sem spilar í Meistaradeild Evrópu á komandi leiktíð.
Sagt var frá því á dögunum að Man Utd vildi bjóða kappanum tveggja ára samning og lána hann í eitt ár, svo hann geti spilað í Meistaradeildinni. Ronaldo hefur aldrei leikið í Evrópudeildinni, keppninni sem Man Utd mun leika í á næsta tímabili.