Fyrr í dag greindi DV frá óhugnanlegri upplifun sem Gunnar Hrafn Jónsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, lýsti í færslu á Facebook-síðu sinni. Gunnar var að heimsækja vin sinn í Vesturbæ Reykjavíkur og var úti að reykja sígarettur með honum þegar ung og ofurölvi stólka mætti á svæðið. Gunnar og vinir hans reyndu að hjálpa stúlkunni sem var mjög ringluð.
„Við ákváðum að vera áfram úti til að sjá til þess að hún kæmist heim til sín, sem hún sagði að væri rétt hjá,“ sagði Gunnar í færslunni. „Svo missir hún ítrekað meðvitund, og ég tek púlsinn á henni sem er veikur. Við náum að vekja hana og gefa henni vatn en hún var alveg stjörf og gat ekkert sagt um hvar hún ætti heima nema að það væri í næsta nágrenni.“
Lesa meira: Gunnar Hrafn segir frá óhugnanlegri upplifun sem átti sér stað í nótt
Síðar tók Gunnar eftir því að púls stúlkunnar var orðinn veikur og ákvað hann þá að hringja í neyðarlínuna. Á meðan Gunnar var að lýsa aðstæðum fyrir starfsmanni neyðarlínunnar fór stúlkan hins vegar í næsta garð og fann Gunnar hana svo ekki aftur. Í færslunni sagðist Gunnar svo vona innilega að stúlkan hafi fengið hjálp frá lögreglunni sem lofaði að leita að henni í hverfinu.
Eftir að DV fjallaði um efni færslunnar veitti Gunnar blaðamanni frekari upplýsingar um málið. „Mér skilst að hún sé fundin og allt í lagi með hana,“ segir hann og vill árétta tvennt sem fram kom í færslunni sem hann birti um málið. Í henni hafði hann sagt að stúlkan hefði þegið áfengi frá þeim en hann segir að hvorki hann né vinur hennar buðu henni áfengi. Þá afsakar hann ónákvæmt orðalag sitt í færslunni.
„Hún drakk eitthvað smá úr glasi sem hún fann en þá náðum við í vatn og reyndum að spjalla við hana, sem gekk ágætlega í fyrstu en svo fór sem ég lýsti,“ segir hann. Þá vildi hann einnig taka fram að ekki ver um partí að ræða. „Bara þrír menn og köttur að chilla í bakgarði og engar áfengisbirgðir til staðar,“ segir hann.
„Hún var nógu skýr fyrst til að segja hvað hún hét, hvar hún vinnur og hvaðan hún var að koma. Það var ekki síst þess vegna sem manni var brugðið þegar hún féll allt í einu í yfirlið.“