fbpx
Laugardagur 19.apríl 2025
Fréttir

Vararíkissaksóknari veldur ólgu með umdeildri færslu – „Er hægt að brottvísa þessum gaur úr landi?“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 22. júlí 2022 10:33

Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, á Facebook-síðu sinni í gær hafi vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum.  En embættismaðurinn fullyrti að hælisleitendur, sem sækja um alþjóðlega vernd hérlendis á grundvelli kynhneigðar sinnar, væru „auðvitað að ljúga“.

Ummælin lét Helgi Magnús falla við frétt um ný­fall­inn dóms Héraðsdóms Reykja­vík­ur þar sem dóm­ur­inn komst að þeirri niðurstöðu að Útlend­inga­stofn­un og kær­u­nefnd út­lend­inga­mála hefðu rang­lega ekki tekið kyn­hneigð manns trú­an­lega, en stefn­andi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi árið 2019 sök­um kyn­hneigðar.

Í umfjöllun um málið sagði Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður mannsins, að dómurinn væri að slá á puttana á stjórnvöldum varðandi framkvæmd þessara mála. „ Ég tel það alveg óboðlegt að framkvæmdin sé eins og hún er í dag, sem er einfaldlega þannig að stjórnvöld trúa ekki þeim sem segja stjórnvöldum hver kynhneigð þeirra er,“ sagði Helgi í umfjöllun Vísis um málið.

Stjórnvöld hefðu úrskurðað að maðurinn væri ekki samkynhneigður því að hann virtist gagnkynhneigður samkvæmt hegðun sinni á samfélagsmiðlum. Benti lögmaðurinn á að maðurinn væri frá landi þar sem lífshættulegt væri að opinbera samkynhneigð sína og því fráleitt að nota hegðunina á samfélagsmiðlum sem einhverskonar sönnun á kynhneigð mannsins.

Vararíkissaksóknarinn virðist þó vera sannfærður um að þetta hafi verið vel gert hjá stjórnvöldum. „Auðvitað ljúga þeir,“ segir hann  í  færslunni sem hefur vakið mikla athygli. „Flestir koma í von um meiri pening og betra líf. Hver lýgur sér ekki til bjargar.“

Þá kom Helgi Magnús með spurningu í lok færslunnar sem hefur hvað mest verið gagnrýnd ásamt fullyrðingunni um að hælisleitendur ljúgi. „Er einhver skortur á hommum á Íslandi?“ spyr embættismaðurinn.

Færslan umdeilda

Skjáskot af færslunni sem um ræðir var birt á Twitter

Krefjast afsagnar eða brottvísunar

Baráttukonan og lögfræðingurinn Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann er á meðal þeirra sem hafa furðað sig á færslu vararíkissaksóknarans. Í færslu sem Kolbrún birti á Twitter-síðu sinni sýnir hún ummæli Helga Magnúsar sem og skjáskot af annari grein siðareglna ákærenda.

Í siðareglunum kemur fram að ákærandur eigi að gæta þess í framkomu sinni og framgöngu að rýra ekki traust og trú almennings á hlutleysi ákæruvaldsins. „Ákærendur skulu haga störfum sínum og framkomu þannig að hlutleysi ákæruvaldsins verði ekki dregið í efa,“ segir í siðareglunum.

„Skil þetta bara eftir hér,“ segir Kolbrún Birna í færslunni.

Fleiri netverjar hafa gagnrýnt Helga Magnús harðlega fyrir ummælin. „Hinsegin fordómar bætast við langan lista af mannhatandi skoðunum sem eiga alls ekki heima hjá þessu embætti,“ segir til að mynda einn netverji og spyr svo hvenær sé komið nóg.

Þá bendir einn netverji vararíkissaksóknaranum á að það er eflaust góð ástæða fyrir því að hælisleitendur séu ekki að flagga hinseginleika sínum á samfélagsmiðlum. „Veit bara ef ég væri gay og byggi í landi þar sem fólk er bókstaflega drepið út af kynhneigð, þá myndi ég svo sannarlega ekki pósta því á samfélagsmiðla.“

Nokkrir netverjar hafa svo sagt að Helgi Magnús eigi að segja af sér eða það sem meira er, að honum eigi sjálfum að vera vísað úr landi. „Hann er alltaf að prófa hvað hann kemst upp með að segja. Hvernig væri ef þessum gaur væri bara sagt upp,“ segir til dæmis einn netverji. „Ég vil að þessi maður segi af sér þessu embætti fyrir kvöldmat. Það er lágmarkið,“ segir svo annar netverji.

„Er hægt að brottvísa þessum gaur úr landi? Það er nóg af leiðinlegum körlum hér á landi,“ segir svo enn annar.

Áður valdið usla

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Helgi veldur usla á samfélagsmiðlum. Í um­fjöll­un Stund­ar­inn­ar árið 2019 var Helgi sakaður um að bera út kynþátta­hyggju­boðskap.

Þá hefur hann verið gagnrýndur   fyr­ir að deila hug­leiðing­um sín­um um sjálfs­ákvörðun­ar­rétt kvenna til þung­un­ar­rofs en hann lýsti sig andvígan þung­un­ar­rofi eft­ir tutt­ug­ustu viku meðgöngu.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum
Fréttir
Í gær

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vitni segja dótturina hafa beitt foreldra sína líkamlegu ofbeldi

Vitni segja dótturina hafa beitt foreldra sína líkamlegu ofbeldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar