Bloggararnir vilja að Pútín hætti þessu og lýsi yfir stríði og virkji þannig allt rússneska kerfið til stríðsreksturs.
Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) skýrir frá þessu í greiningu á stöðu stríðsins.
Ein af mest áberandi röddunum í þessari umræðu er Igor Girkin, sem er þjóðernissinni og einn af höfuðpaurunum á bak við árásina á Krím og Donbas 2014. Hann er vinsæll meðal þeirra sem eru ósáttir við hvernig Rússar haga stríðsrekstrinum.
Í greiningu ISW segir að Girkin hafi á þriðjudaginn birt umfangsmikinn lista yfir hernaðarlegar, efnahagslegar og pólitískar aðgerðir sem hann segir að Rússar verði að grípa til ef þeir ætla að sigra í stríðinu í Úkraínu.
Efst á þessum lista er hætta á að nota orðræðuna um „sérstaka hernaðaraðgerð“ og skilgreina opinber markmið fyrir stríðið.
Ef farið verður að ráðum Girkin, sem styður stríðsreksturinn, þá á að setja stefnuna á að hertaka enn fleiri svæði en rússnesk stjórnvöld hafa skilgreint sem markmiðið með stríðsrekstrinum en það hljóðar upp á að hernema Donbas. Girkin vill að „Novorossiya“ verði hertekin en það svæði nær að hans sögn yfir Kharkiv, Dnipropetrovsk, Mykolaiv, Odesa, Zaproizjzja, Kherson, Donetsk og Luhansk.
Hann telur einnig að mynda eigi „Malorossiya“ (Litla-Rússland) á landsvæði sem nær yfir alla Úkraínu að pólsku landamærunum.