fbpx
Sunnudagur 22.desember 2024
Fréttir

Laila Hjaltadóttir fordæmir Wizz air – „Mér finnst hræðilegt að til sé flugfélag sem leyfir sér að koma svona fram við fólk“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 17. júlí 2022 17:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laila Hjaltadóttir telur viðskiptahætti flugfélagsins Wizz air vera óboðlega og ólöglega. Hún átti pantað flug með félaginu til London/Luton þann 5. þessa mánaðar. Ferðinni var heitið til Antalya í Tyrklandi. Laila og samferðarfélagi hennar höfðu bókað gistingu í Luton þar sem verja átti einni nótt.

Samdægurs kom tilkynning frá Wizz air í sms þess efnis að fluginu myndi seinka um klukkustund. Laila kippti sér ekki upp við það. En um það leyti sem hún ætlaði að leggja af stað til Keflavíkur kom annað sms frá Wizz air, þess efnis að fluginu hefði verið aflýst. Var vísað á vef Wizz air til að endurbóka eða fá endurgreitt.

En eiginleg endurgreiðsla virðist í raun ekki í boði. „Það sem þeir bjóða upp á, þetta er svo mikil snilld, er að endurgreiða plús 20% ofan á miðaverðið, en inn á Wizz air reikning, sem þýðir að peningarnir þínir liggja læstir inni hjá þeirra eigin flugfélagi. Þú getur ekki notað þessa peninga öðruvísi en að bóka flug með þeim aftur,“ segir Laila og þurfti hún að endurtaka þetta til að blaðamaður tryði henni.

„Það sem meira er, að áður fyrr gilti þetta í þrjú ár en núna aðeins í eitt ár, ef þú  notar þetta ekki eyðist þetta út, ef þú notar inneignina til að bóka annað flug og það klikkar þá áttu engin réttindi á endurbókun, því þú varst að fljúga fyrir þeirra náð og miskunn.“

Laila komst á áfangastað með herkjum, hún þurfti að borga fyrir ónotaða hótelnótt í Luton og þetta var allt saman heilmikill kostnaður. Laila er núna stödd í góðu yfirlæti í Antalya í Tyrklandi og flýgur heim þann 23. júlí, með öðru flugfélagi en Wizz air, sem betur fer, segir hún.

Hún segir fargjaldið vissulega hafa verið ódýrt en þessi framkoma við viðskiptavini sé óboðleg og hún ætlar með þetta lengra. Hún segir jafnframt að ómögulegt sé að ná í starfsfólk hjá Wizz air og það eina sem sé í boði sé vélmenni í síma. Auk þess þurfi að greiða hátt gjald fyrir símtöl í flugfélagið og ef félagið metur það svo að viðskiptavinur hafi fengið aðstoð á netinu séu rukkaðar 15 evrur.

Um tilgang væntanlegrar málsóknar sinnar á hendur Wizz air segir Laila:

„Þetta snýst ekki um peninga heldur bara það að mér finnst hræðilegt að til sé flugfélag sem leyfir sér að koma svona fram við fólk. Sérstaklega þegar í þessu lendir fólk sem á litla peninga og er að reyna að ferðast ódýrt.“

Skelfilegar umsagnir

Laila segist hafa gerst hálfgerður sérfræðingur í kvörtunum á hendur Wizz air kjölfar þessarar uppákomu og hafi hún meira að segja fengið demants-viðurkenningu fyrir virka þátttöku í Facbook-hópum og -síðum um Wizz air. Þar segir hún að birtist ófagrar sögur og má sjá sýnishorn af neikvæðri umræðu í skjáskotum sem hér fylgja.

„Fólk er að lenda á kolvitlausum flugvöllum, starfsmenn Wizz air eru þar hvergi sjáanlegir og fólk hefur orðið bíða eftir rútum klukkutímum saman og síðan ferðast með þeim allt að 600 km.  Fólk hefur síðan verið að fá gjafakort fyrir mat og drykk upp á fjórar evrur.“

Hún bendir á að sé flugi aflýst innan tiltekinna tímamarka eigi farþegar rétt á skaðabótum. „Ég ætla að stefna þeim prinsippsins vegna, ekki af því ég hafi tapað svo miklum peningum á þessari vitleysu,“ segir Laila.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Innflytjandinn sem lét íslenskar konur heyra það: „Væri reiðin ykkar önnur ef Íslendingur hefði skrifað þetta?“

Innflytjandinn sem lét íslenskar konur heyra það: „Væri reiðin ykkar önnur ef Íslendingur hefði skrifað þetta?“
Fréttir
Í gær

Sigurður G. segir að eins og fyrr sé hnefinn á lofti hjá Eflingu

Sigurður G. segir að eins og fyrr sé hnefinn á lofti hjá Eflingu
Fréttir
Í gær

Strætósvindlarar verða krafðir um fargjaldaálag

Strætósvindlarar verða krafðir um fargjaldaálag
Fréttir
Í gær

Nikótínvörusali bregst við auglýsingabanni – Túnfiskdósir og „ape shop“

Nikótínvörusali bregst við auglýsingabanni – Túnfiskdósir og „ape shop“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir sló og sparkaði í dóttur sína – Hótaði að berja hana svo illa að hún gæti ekki andað fyrir blóði

Faðir sló og sparkaði í dóttur sína – Hótaði að berja hana svo illa að hún gæti ekki andað fyrir blóði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sævar Þór beinir athygli að því að sumir hafa það ekki gott um jólin

Sævar Þór beinir athygli að því að sumir hafa það ekki gott um jólin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sex ára drengur setti fingur í hurðarfals myndmenntastofu og unglingur sparkaði í hurðina

Sex ára drengur setti fingur í hurðarfals myndmenntastofu og unglingur sparkaði í hurðina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brotist inn í bíl Páls Steingrímssonar en lögregla og tryggingafélag draga lappirnar – „Ég vil bara vara fólk við þessu“

Brotist inn í bíl Páls Steingrímssonar en lögregla og tryggingafélag draga lappirnar – „Ég vil bara vara fólk við þessu“