fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
433Sport

Ronaldo hafnaði því að fá 34 milljarða í vasann

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 15. júlí 2022 10:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt frétt Daily Express hefur Cristiano Ronaldo hafnað svakalegu tilboði frá Sádi-Arabíu.

CNN í Portúgal sagði í gær frá því að félag í Sádi-Arabíu hafi boðið hinum 37 ára gamla Ronaldo svakalegan tveggja ára samning til að klára glæstan feril sinn.

Samkvæmt fréttinni bauð félagið Manchester United, sem á leikmanninn, 25 milljónir punda til að fá hann til sín.

Þá hefði Jorge Mendes, umboðsmaður Ronaldo, fengið 20 milljónir punda í sinn vasa.

Loks hefði portúgalski sóknarmaðurinn fengið 105 milljónir fyrir hvort tímabil um sig. Það gera þá 210 milljónir punda, eða yfir 34 milljarða íslenskra króna.

Þessu hafnaði hins vegar Ronaldo.

Ronaldo vill komast frá Man Utd. Hann sneri aftur til félagsins í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf það fyrir Real Madrid.

Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en Man Utd hafnaði hins vegar í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Framkvæmdir á áætlun – Sáning fer fram um miðjan mánuðinn

Framkvæmdir á áætlun – Sáning fer fram um miðjan mánuðinn
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rúnar Kristins: „Nú bý ég leigulaust í hausnum á þér“

Rúnar Kristins: „Nú bý ég leigulaust í hausnum á þér“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Miklar umræður sköpuðust um veðmál á stjórnarfundi í Laugardalnum

Miklar umræður sköpuðust um veðmál á stjórnarfundi í Laugardalnum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum
Þungt högg í maga City
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sonur Ronaldo stendur frammi fyrir athyglisverðu vali

Sonur Ronaldo stendur frammi fyrir athyglisverðu vali
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kristján segir hann komast upp með allt of mikið hér á landi – „Mesti hrottinn“

Kristján segir hann komast upp með allt of mikið hér á landi – „Mesti hrottinn“
433Sport
Í gær

Fótbrotnaði í annað sinn á stuttum tíma

Fótbrotnaði í annað sinn á stuttum tíma
433Sport
Í gær

Staðfestir símtal frá Real Madrid – ,,Ég vildi sýna traust“

Staðfestir símtal frá Real Madrid – ,,Ég vildi sýna traust“