fbpx
Þriðjudagur 25.mars 2025
433Sport

Lést eftir að hafa orðið fyrir strætisvagni við EM-torgið í Manchester – Fjöldi Íslendinga á svæðinu

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 11. júlí 2022 08:57

Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona á sextugsaldri lést eftir að hún varð fyrir strætisvagni við svokallað EM-torg sem búið er að koma upp við Piccadilly Gardens í Manchester í tilefni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fer nú fram í Englandi. Fjöldi Íslendinga var á svæðinu í gær í tilefni þess að Ísland lék opnunarleik sinn á mótinu við Belga.

Það er Manchester Evening News sem greinir frá framvindu mála í tengslum við slysið en auk konunnar sem lést liggur einn alvarlega slasaður á sjúkrahúsi og annar með minniháttar meiðsli.

Tveggja hæða strætisvagn lenti á strætóskýli við EM-torgið í gær. Einstaklingar sem urðu vitni að atvikinu hafa lýst því hvernig strætisvagninum hafi  verið ekið upp á gangstétt þar sem hann hafi á endanum lent á strætisskýlinu.

Lögreglan í Greater Manchester biðlar til fólks sem kann að búa yfir myndefni að aðdraganda slyssins um að gefa sig fram þar sem það gæti hjálpað til við rannsókn málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Var mjög nálægt því að semja við United á sínum tíma – Ófrísk eiginkona hafði áhrif

Var mjög nálægt því að semja við United á sínum tíma – Ófrísk eiginkona hafði áhrif
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Undrabarnið varpaði sprengju í nýju viðtali og gefur í skyn að hann vilji fara – ,,Ég er mjög áhyggjufullur“

Undrabarnið varpaði sprengju í nýju viðtali og gefur í skyn að hann vilji fara – ,,Ég er mjög áhyggjufullur“
433Sport
Í gær

Sér fyrir sér að Kane geti unnið verðlaunin eftirsóttu

Sér fyrir sér að Kane geti unnið verðlaunin eftirsóttu
433Sport
Í gær

Hvorugt íslensku liðanna á möguleika lengur

Hvorugt íslensku liðanna á möguleika lengur
433Sport
Í gær

Sjáðu þegar Gylfi opnaði markareikning sinn í Fossvoginum

Sjáðu þegar Gylfi opnaði markareikning sinn í Fossvoginum
433Sport
Í gær

Segir Kristni að segja af sér eftir ræðuna umdeildu – „Ég trúði þessu ekki þegar ég sá þetta, þvílíkur vitleysingur“

Segir Kristni að segja af sér eftir ræðuna umdeildu – „Ég trúði þessu ekki þegar ég sá þetta, þvílíkur vitleysingur“